Ársfundur Starfsafls var haldinn fimmtudaginn 12. maí síðast liðinn á Vox Club, Hilton Reykjavík Nordica. Þetta var í fjórða sinn sem haldinn er opinn fundur þar sem fulltrúum fyrirtækja, eigendum sjóðsins, ráðgjöfum sem starfa á vegum sjóðsins og öðrum samstarfsaðilum var boðið. Mæting var góð og það mátti finna að gestum fannst gott að koma […]
Category: Almennar fréttir
Ársfundur Starfsafls 12 maí, skráning hafin
Eftir tveggja ára hlé er loksins blásið til ársfundar Starfsafls. Hann verður haldinn fimmtudaginn 12. maí nk. kl. 13:30 – 15:30 á Vox Club, Hilton Reykjavík Nordica. Athugið að fjöldi gesta er takmarkaður og því borgar sig að skrá sig fyrr en seinna, síðast komust færri að en vildu. Dagskráin samanstendur af stuttum en fróðlegum […]
Myndir frá ársfundum 2017 – 2019
Þar sem senn líður að ársfundi Starfsafls eftir tveggja ára hlé, er ekki úr vegi að skoða myndir frá þeim ársfundum sem hafa verið haldnir. Fróðleg erindi, skemmtlegt fólk og góðar veitingar, þetta gæti ekki verið betra. Myndirnar hér fyrir neðan tala sínu máli.
Lokað hjá Starfsafli til 25. apríl
Við hér hjá Starfsafli ætlum að taka okkur langt og gott frí yfir hátíðarnar. Skrifstofa Starfsafls verður því lokuð frá miðvikudeginum 13. apríl til mánudagsins 25. apríl 2022. Um leið og við óskum öllum gleðilegrar páskahátíðar þá minnum við á að Áttin, vefgátt sjóða, lokar aldrei og þar er hægt að leggja inn allar umsóknir […]
Hvernig er með þitt sumarstarfsfólk?
Með sumrinu kemur sumarstarfsfólkið og í mörgum tilvikum er um að ræða ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Oft vantar upp á reynslu og hæfni og þá er ánægjulegt að segja frá því að fjöldi fyrirtækja sér hag í þvi að greiða fyrir sitt sumarstarfsfólk allskonar vinnuvélanám sem veitir réttindi […]
90% styrkhlufall framlengt til haustsins
Stjórn Starfsafls hefur samþykkt framlengingu á 90% endurgreiðslu / styrk til 30. september 2022. Ekki er gert ráð fyrir frekari framlengingum svo nú fer hver að verða síðastur áður en styrkhlutfall verður lækkað aftur í 75%. Framlengingin nær bæði til einstaklinga og fyrirtækja sem greiða starfstengt nám fyrir sitt starfsfólk. Réttur fyrirtækis til að sækja […]
Starfsafl styrkir gerð netskóla Lemon
Undir lok síðasta árs barst Starfsafli áhugaverð umsókn um styrk vegna klasa- og þróunarverkefnis. Á bak við verkefnið voru fjögur fyrirtæki sem standa að vörumerkinu Lemon og svo ráðgjafi verkefnisins. Verkefnið sem sótt var um styrk vegna var uppbygging á stafrænu fræðsluumhverfi fyrir starfsmenn Lemon á landsvísu. Verkefnið var mjög metnaðarfullt og samþykkti stjórn Starfsafls […]
25 milljónir greiddar út í mars
Það er alltaf áhugavert að skoða tölur mánaðarins og bera saman við fyrri ár. Það gefur örlitla innsýn í atvinnulífið og taktinn þar í fræðslu- og menntamálum. Nú er til að mynda aðeins farið að bera á því að fyrirtæki séu að undirbúa það að taka á móti sumarstarfsfólki, oftar en ekki ungu fólki sem […]
Kynningarmyndband um Áttina, vefgátt sjóða
Réttur til að sækja um styrk hjá Starfsafli myndast sjálfkrafa og um leið og launatengd gjöld hafa verið greidd. Öll fyrirtæki, óháð stærð, eiga sama rétt og má sjá reglurnar hér. Hámark til hvers fyrirtækis er 3 milljónir króna á ári og sótt er um á www.attin.is Átta starfsmenntasjóðir hafa sameinast um þá vefgátt sem […]
Framkvæmdastjóri í Frjálsri verslun
Í nýjasta tölublaði Frjálsrar verslunar, sem út kom í byrjun mánaðarins, er viðtal við framkvæmdastjóra Starfsafls, Lísbetu Einarsdóttur. Til umfjöllunar voru starfsmenntamál og styrkir til fyrirtækja. Þar segir hún meðal fagna því þegar ný fyrirtæki sækja um en engu að síður sé það aðeins lítið brot fyrirtækja sem nýta rétt sinn hjá sjóðnum á ári […]
 
				 
	 
	 
	 
	 
	 
	 
	 
	 
	