Starfsafl hefur veitt fyrirtækinu Effect ehf., undir forystu athafnakonunnar Evu Karenar Þórðardóttur, eina milljón króna í nýsköpunar- og þróunarstyrk vegna áframhaldandi þróunar á Stafrænum fræðslustjóra. Verkefnið er hugbúnaðarlausn sem miðar að því að auðvelda fyrirtækjum að greina fræðsluþarfir starfsfólks, skipuleggja fræðslu og fylgjast með árangri hennar. Verkefnið er hugbúnaðarlausn sem miðar að því að auðvelda […]
Vegna breytinga á reglum um styrki til tungumálanáms
Í kjölfar fréttar Starfsafls frá 10. september síðastliðnum um breytingar á reglum um styrki til tungumálanáms hafa sjóðnum borist ábendingar og athugasemdir frá fræðsluaðilum og félagsfólki. Stjórn Starfsafls telur því rétt að gera nánari grein fyrir forsendum ákvörðunarinnar og þeim sjónarmiðum sem liggja að baki. Breytt fræðsluumhverfi kallar á skýrari viðmið Fræðsluumhverfið hefur tekið miklum […]
Fræðsla og starfsþróun mannauðs mikilvægasta fjárfestingin
Þegar hægir á í efnahagslífinu er eðlilegt að allir kostnaðarliðir séu tekin til skoðunar og seglin dregin saman þar sem það er mögulegt. Fræðsla og starfsþróun mannauðs geta þá verið meðal þess sem freistandi er að skera niður, því miður, enda margir sem líta svo á að mannauðstengdir þættir séu kostnaður en ekki fjárfesting. Ný […]
Nýtt stafrænt verkfæri til að greina fræðsluþarfir starfsfólks
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur opnað nýtt stafrænt verkfæri sem auðveldar fyrirtækjum að greina fræðslu og þjálfunarþarfir starfsfólks. Á næstu vikum kemur til viðbótar einfalt sniðmát fyrir uppsetningu á fræðsluáætlun. Starfsafl tók þátt í að styrkja þróun verkfærisins ásamt öðrum starfsmenntasjóðum og öllum er velkomið að nota verkfærið, sér að kostnaðarlausu. Markviss fræðsla byrjar á því að […]
Breyting á reglum vegna íslensku- og annars tungumálanáms
Um næstu áramót, 1. janúar 2027, taka gildi nýjar reglur um styrki vegna tungumálanáms, en frá þeim tíma verða aðeins veittir styrkir vegna tungumálanáms sem fram fer í framhalds- eða háskólum og hjá viðurkenndum fræðsluaðilum. √ Eftir 1. janúar verður eingöngu hægt að sækja um styrk vegna tungumálanáms ef námið fer fram í framhalds – […]
Við sumri tekur haustið
Síðasti mánuður sumarsins er á enda runninn og haustið tekið við. Allir reikningar vegna þeirrar fræðslu sem fram fór fyrir sumarstarfsfólk ættu að vera komnir í hús og ekki seinna vænna en að sækja um styrk vegna þeirrar fræðslu sem er löngu lokið, áður en haustið tekur völdin með þeim önnum sem því fylgir. Með […]
Er þitt fyrirtæki með fræðslustefnu ?
Fræðsla starfsfólks er mikilvægur þáttur í starfsemi fyrirtækja en til þess að hún skili sem mestum árangri þarf að huga að því hvaða hæfni er til staðar, hvaða hæfni þarf að byggja upp og hvernig fræðslan styður við markmið og þróun fyrirtækisins. Þar kemur fræðslustefna að góðum notum. Hún þarf hvorki að vera löng né […]
Haustið nálgast, nú er tíminn til að senda inn umsóknir
Eitt af meginmarkmiðum Starfsafls er að styðja fyrirtæki og starfsfólk þeirra í því að efla hæfni, öryggi og tækifæri á vinnumarkaði, óháð lífaldri, starfsaldri eða ráðningartíma. Það er því mikilvægt að fyrirtæki geri allt starfsfólk, þar með talið sumarstarfsfólk, að virkum þátttakendum í fræðslu sem getur leitt til áunninna réttinda og annarrar viðurkenndrar hæfni á […]
Framkomuþjálfun, velferð fiska, húmor og hamingja meðal styrkja í júlí
Styrkir til fyrirtækja og einstaklinga, samantekt júlí 2026 Það er oftar en ekki mikill fjöldi umsókna sem sjóðnum berst í júlí þar sem fjöldi fyrirtækja nýtir sumarmánuðina til að taka saman gögn og senda inn umsóknir vegna náms og námskeiða sem starfsfólk hefur sótt það sem af er ári. Þá eru fyrirtæki sem senda inn […]
Lyklar að hæfni framtíðarinnar
Hvernig tryggjum við að íslenskur vinnumarkaður búi yfir þeirri hæfni sem þarf til að mæta síbreytilegum kröfum framtíðarinnar? Þetta er ein af stærstu áskorunum atvinnulífsins og um leið eitt mikilvægasta verkefni þeirra sem hafa með fræðslu, starfsþróun og mannauðsmál að gera. Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins og stjórnarkona í stjórn Starfsafls hefur […]