Starfsafl hefur veitt fyrirtækinu Effect ehf., undir forystu athafnakonunnar Evu Karenar Þórðardóttur, eina milljón króna í nýsköpunar- og þróunarstyrk vegna áframhaldandi þróunar á Stafrænum fræðslustjóra.
Verkefnið er hugbúnaðarlausn sem miðar að því að auðvelda fyrirtækjum að greina fræðsluþarfir starfsfólks, skipuleggja fræðslu og fylgjast með árangri hennar.
Verkefnið er hugbúnaðarlausn sem miðar að því að auðvelda fyrirtækjum að greina fræðsluþarfir starfsfólks, skipuleggja fræðslu og fylgjast með árangri hennar.
Effect hefur frá árinu 2022 unnið að þróun stafrænnar lausnar sem gerir fyrirtækjum kleift að greina hæfni og þekkingu starfsfólks með skipulögðum hætti. Um 30 fyrirtæki hafa þegar nýtt sér lausnina, sem hefur verið þróuð og endurbætt á undanförnum árum.
Með þeirri þróunarvinnu sem nú stendur yfir er stefnt að því að gera kerfið enn aðgengilegra og sjálfstæðara í notkun. Fyrirtæki munu geta framkvæmt hæfnigreiningar, útbúið fræðsluáætlanir og tengt niðurstöður við viðeigandi fræðslu og þjálfun án sérstakrar utanaðkomandi aðstoðar.
Lausnin gerir stjórnendum kleift að fá yfirsýn yfir hæfni og fræðsluþarfir, hvort sem er fyrir fyrirtækið í heild, einstakar deildir eða starfsfólkið sjálft. Jafnframt er henni ætlað að styðja við markvissari starfsþróun og auðvelda fyrirtækjum að meta hvort fræðsla skili tilætluðum árangri.
Nýsköpun og þróun í þágu atvinnulífsins
Starfsafl veitir nýsköpunar- og þróunarstyrki til verkefna sem stuðla að framþróun á sviði fræðslu og starfsmenntunar. Með styrkjunum vill sjóðurinn styðja við nýjar hugmyndir, þróun fræðslulausna og verkefni sem geta nýst starfsfólki og fyrirtækjum til framtíðar.
Verkefni á borð við Stafrænan fræðslustjóra falla vel að áherslum sjóðsins um að efla markvissa fræðslu og tengja hana betur raunverulegum þörfum atvinnulífsins. Með því að byggja ákvarðanir um fræðslu á greiningu á hæfni og þekkingu má nýta betur það fjármagn og þann tíma sem fyrirtæki verja til starfsþróunar.
Starfsafl leggur áherslu á að fræðsla sé ekki aðeins útgjaldaliður heldur fjárfesting í hæfni starfsfólks og framtíð fyrirtækja. Nýsköpunar- og þróunarstyrkir eru ein þeirra leiða sem sjóðurinn nýtir til að stuðla að þeirri þróun.
Fyrirtæki með starfsfólk í þeim félögum sem standa að Starfsafli og hafa áhuga á að prófa lausnina, býðst að prófa hana án endurgjalds í 3 mánuði. Frekari upplýsingar veitir Eva Karen í gegnum netfangið [email protected]
Um Starfsafl:
Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma. Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Myndin með fréttinni er fengin hér