Í okbóber var aðeins farið að bera á því að árið væri senn á enda og fyrirtæki að senda inn umsóknir um styrki vegna fræðslu og starfsmenntunar sem farið hefur fram á árinu. Betra er seint en aldrei en reynslan sýnir að umsóknum fjölgar jafnan þegar líður að áramótum og nær fjöldi þeirra hámarki í nóvember. Það er þó vert að minna á það að fyrirtæki þurfa ekki að senda inn fyrir áramót nema þau sjái fram á að fullnýta rétt sinn, en aðeins örfá fyrirtæki eru í þeirri stöðu. Reikningur má vera allt að 12 mánaða og skiptir engu hvoru megin áramóta hann fellur hjá flestum fyrirtækjum.
Að því sögðu er Starfsafl sterkur bakhjarl fyrirtækja sem fjárfesta í fræðslu og starfsmenntun starfsfólks síns. Sem dæmi má nefna að endurgreiðsla getur numið allt að 90% af kostnaði við fræðslu þegar um hóp starfsfólks er að ræða. Þá getur styrkur vegna einstaklings sem sækir nám á kostnað fyrirtækis numið allt að 300.000 krónum.
Öll fyrirtæki, óháð stærð, eiga rétt á allt að 4.000.000 króna styrk á ári.
Að því sögðu er áhugavert að skoða tölur októbermánaðar.
Styrkir til fyrirtækja
Samanlögð styrkfjárhæð til fyrirtækja var 10 milljónir króna og á bak við þá tölu 964 félagsmenn. 67 umsóknir bárust frá 26 fyrirtækjum og var lægsti styrkurinn kr. 2475,- og sá hæsti kr 925,000 ,- Tveimur umsóknum var hafnað, annarri þar sem enginn þátttakanda tilheyrði Starfsafli og hinni þar sem reikningur var eldri en 12 mánaða. Samanlögð styrkfjárhæð til fyrirtækja var rétt undir 10 milljónur króna og á bak við þá tölu 964 félagsmenn.
Samanlögð styrkfjárhæð til fyrirtækja var 10 milljónum króna og á bak við þá tölu 964 félagsmenn.
Í október voru 6 umsóknir vegna meiraprófa auk þess sem sótt var um vegna námskeiðs í iðntölvustýringum, fallvörnum og fjöldi umsókna var vegna öryggisnámskeiða, svo dæmi séu tekin. Önnur námskeið voru sem hér segir:ADR endurmenntun grunn
ADR endurmenntun grunn
Eldvarnarfulltrúinn
Endurmenntun atv.
Erfið starfsmannamál
Fallvarnir (rafrænt)
Fiskeldistækni
Fiskvinnslunámskeið
Flugverndar- og öryggisvitund
Frumnámskeið
Fyrirlestur um jákvæðni
Gæðastjórnun
Geðheilbrigði
Grunnnámskeið vinnuvéla
Iðntölvustýringar
Íslenska
Leiðtogaþjálfun
Lyftaranámskeið
Mannauðsráðstefna
Meindýravarnir
Meirapróf
Námskeið í þrifum
Niðurrif á Asbesti
Öryggisnámskeið
Power B1 fyrir byrjendur
Samskipti
Stjórnendaþjálfun
Skyndihjálp
SSG Öryggisnámskeið
Stafrænt fræðsluumhverfi
Starfsandi og þjónusta
Þjónustunámskeið
Vinnustaðaskóli Akademías
Vinnuvélanámskeið
Námskeiðin sem sótt var um styrk vegna voru ansi fjölbreytt. Ein umsókn var vegna sameiginlegs styrks fyrirtækis og félagsmanns, tvær umsóknir vegna stafræns fræðsluumhverfis, þrjár vegna fræðslusafns og ein vegna nýsköpunar- og þróunar. Önnur námskeið voru samanber eftirfarandi upptalningu;
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Myndin með fréttinni er fengin hér