Nú fer í hönd sá tími þar sem fyrirtæki hrinda í framkvæmd fræðsluáætlun, ef slík áætlun liggur fyrir, og keyra í gang fræðslustarf fyrirtæksins sem er á áætlun þennan veturinn. Þá er gott að vera búin að senda inn umsóknir fyrir þeirri fræðslu sem nú þegar hefur farið fram svo fjármagn sé til staðar til að greiða fyrir þá fræðslu sem er á dagskrá. Það er gott verklag og margir myndu segja fínasta fjármálastjórnun.
Það léttir líka á okkur sem störfum hjá sjóðnum að afgreiða jafnt og þétt yfir árið, en á hverju ári berast sjóðnum hundruði umsókna og því miður er það svo að a.m.k. fjórðungur umsókna berst á síðustu 6 vikum fyrir skilafrest í desember, með tilheyrandi álagi á sjóðinn. Við hvetjum því alla til að senda inn umsóknir sem allra fyrst en ekki lúra á þeim þar til á siðustu stundu.
Vel sótt í sjóðinn það sem af er ári
Það sem af er ári, til og með september hafa verið greiddar í styrki til einstaklinga og fyrirtækja tæplega 438 milljónir króna.
Það sem af er ári, til og með september hafa verið greiddar í styrki til einstaklinga og fyrirtækja tæplega 438 milljónir króna.
Að því sögðu er við hæfi að horfa um öxl og skoða tölur nýliðins mánaðar.
Styrir til einstaklingar og fyrirtækja í september 2026
Styrkir til fyrirtækja
40 umsóknir bárust frá 20 fyrirtækjum í mánuðinum. Samanlögð styrkfjárhæð var 5.6 milljónir króna og á bak við þá tölu 597 félagsmenn. Alls 15 umsóknum var hafnað sem er óvenju hátt hlutfall umsókna. Ástæður þar að baki voru margvíslegar, til að mynda vantaði gögn og þeim ekki skilað þrátt fyrir ítrekanir, umsókn var illa unnin og ekki hægt að lesa úr henni, réttur fyrirtækis var fullnýttur í nokkrum tilvikum, reikninguar á kennitölu félagsmanns og svo framvegis. Í því samhengi er vert að minna á að vanda umsóknir, aðeins einn reikingur í hverri umsókn og muna eftir skilagreinum, ef þátttakandi námskeiðs er félagsmaður Eflingar.
Þau námskeið sem sótt var um styrk vegna, voru samanber eftirfarandi upptalningu:
Brunavarnir
Dýravelferðarnámskeið
Frumnámskeið
Grunnnámskeið vinnuvéla
Íslenska
Öryggi- og björgun
Öryggisnámskeið
Rakamælingar
Skyndihjálp
Stafrænt fræðsluumhverfi
Þjónustunámskeið
Verkstjóraskólinn
Vínnámskeið
Vinnustaðaskóli Akademías
Styrkir til einstaklinga
Efling kr. 30.992.171,-
VSFK kr. 10.892.735,-
Hlíf kr. 2.406.870,-
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Photo by Sam Carter on Unsplash