Það er alltaf ánægjulegt þegar starfsfólk fyrirtækja hefur samband við skrifstofu Starfsafl til að kynna sér hvaða möguleikar eru fyrir það sjálft, í gegnum styrki til fyrirtækja. Slíkt gerist reglulega og við fögnum ávallt slíkum fyrirspurnum.
Í byrjun september hafði ungur þjónn á veitingastað í Reykjavík samband við Starfsafl. Hann vildi kanna hvort vinnuveitandi hans ætti rétt á styrk vegna námskeiðs í vínfræðum sem hann hafði áhuga á að sækja erlendis.
Og það reyndist svo sannarlega vera. Fyrirtækið átti rétt á 90% endurgreiðslu á námskeiðsgjaldinu. Ungi maðurinn fór með þessar upplýsingar til vinnuveitanda síns og innan viku hafði hann skráð sig á námskeiðið. Áður en mánuðurinn var liðinn hafði Starfsafl afgreitt umsókn vegna þessa frá fyrirtækinu og greitt styrk til fyrirtækisins.
Það er vert að benda á að námskeið af þessu tagi eru ekki styrkhæf í gegnum einstaklingsstyrki, en fyrirtæki hafa mun ríkari rétt og geta fengið allt að 90% af námskeiðskostnaði endurgreiddan vegna starfstengdrar fræðslu starfsfólks.
Það er vert að benda á að námskeið af þessu tagi eru ekki styrkhæf í gegnum einstaklingsstyrki, en fyrirtæki hafa mun ríkari rétt og geta fengið allt að 90% af námskeiðskostnaði endurgreiddan vegna starfstengdrar fræðslu starfsfólks.
Ávinningurinn er augljóslega gagnkvæmur. Starfsmaðurinn sýnir frumkvæði og metnað til að efla eigin hæfni og starfsþróun, á meðan veitingastaðurinn nýtur góðs af aukinni þekkingu og færni starfsmannsins. Slík fjárfesting getur skilað sér í betri þjónustu, ánægðari viðskiptavinum og að lokum jákvæðum áhrifum á reksturinn.
Við óskum unga manninum góðs gengis í náminu.
Þessi saga undirstrikar jafnframt mikilvægi þess að fyrirtæki móti sér skýra fræðslustefnu. Skiptir þar engu hvort þau eru í veitingarekstri, iðnaði eða matvælaframleiðslu, svo dæmi séu tekin. Þar ætti meðal annars að koma fram hvaða stuðningur stendur starfsfólki til boða vegna fræðslu og starfsþróunar, þar á meðal með nýtingu styrkja úr starfsmenntasjóðum. Með skýrri stefnu og góðri upplýsingagjöf geta fyrirtæki hvatt starfsfólk til að efla hæfni sína og jafnframt tryggt betri nýtingu þeirra fjármuna sem standa til ráðstöfunar. Fræðslustefna ætti að vera öllu starfsfólki kunn, svo jafnræðis sé gætt.
Er þitt fyrirtæki með fræðslustefnu, lesa hér
Mikilvægi þess að hafa fræðslustefnu, lesa hér
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Um Starfsafl:
Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma. Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.
Myndin með fréttinni er fengin hér