Fræðsla starfsfólks er mikilvægur þáttur í starfsemi fyrirtækja en til þess að hún skili sem mestum árangri þarf að huga að því hvaða hæfni er til staðar, hvaða hæfni þarf að byggja upp og hvernig fræðslan styður við markmið og þróun fyrirtækisins.
Þar kemur fræðslustefna að góðum notum. Hún þarf hvorki að vera löng né flókin en ætti að svara því hvers vegna fyrirtækið leggur áherslu á fræðslu, hverju hún á að skila og hvernig staðið verður að henni. Með skýrri stefnu verður auðveldara að forgangsraða, greina fræðsluþarfir og tryggja að fjármunum og tíma sé varið í fræðslu sem hefur raunverulegt gildi.
Þar kemur fræðslustefna að góðum notum. Hún þarf hvorki að vera löng né flókin en ætti að svara því hvers vegna fyrirtækið leggur áherslu á fræðslu, hverju hún á að skila og hvernig staðið verður að henni. Með skýrri stefnu verður auðveldara að forgangsraða, greina fræðsluþarfir og tryggja að fjármunum og tíma sé varið í fræðslu sem hefur raunverulegt gildi.
Góð fræðslustefna tekur mið af starfseminni og þeim breytingum sem fyrirtækið stendur frammi fyrir. Ný tækni, breytt vinnubrögð, auknar kröfur og þróun starfa kalla á sífellda endurskoðun á þeirri hæfni sem þarf innan fyrirtækja. Um leið þarf að horfa til starfsfólksins sjálfs, reynslu þess, þekkingar og tækifæra til að þróast í starfi.
Fræðslustefna getur þannig orðið mikilvægur hluti af mannauðsmálum og stefnumótun fyrirtækis. Hún skapar sameiginlegan skilning á því hvert fyrirtækið vill stefna í fræðslumálum og leggur grunn að markvissri fræðsluáætlun.
Fyrirtæki nálgast þessi mál með ólíkum hætti og engin ein fræðslustefna hentar öllum. Það getur því verið gagnlegt að skoða hvernig önnur fyrirtæki hafa sett fram sína sýn og hvaða áherslur þau leggja til grundvallar. Hér fyrir neðan eru dæmi um fyrirtæki sem hafa mótað skýra stefnu um fræðslu og þróun starfsfólks.
Fræðslustefna Beru og Ölgerðarinnar
Fræðslustefna Beru og Ölgerðarinnar byggir á því að hæfni og þróun starfsfólks sé sameiginleg ábyrgð fyrirtækis, stjórnenda og starfsfólks. Markmiðið er að stuðla að starfsánægju og tryggja að fyrirtækið hafi yfir að ráða hæfu, vel menntuðu og áhugasömu starfsfólki. Sérstök áhersla er lögð á að fræðsla styðji við framtíðarhæfni, stafræna þróun, umbótamenningu, sjálfbærni og getu fyrirtækisins til að takast á við breytingar í rekstrarumhverfi.
Fræðsluþarfir eru greindar árlega, meðal annars út frá samtölum við stjórnendur og niðurstöðum starfsmannasamtala, og fræðsluáætlun mótuð á þeim grunni. Fræðsla fer bæði fram staðbundið og í gegnum rafræna fræðslukerfið Visku, þar sem áherslan er á vitund, visku og vöxt – að ný þekking verði að skilningi og færni sem skilar sér í aukinni hæfni og árangri í starfi. Þá er þátttaka í fræðslu skráð í mannauðskerfi, sem styður við markvisst utanumhald og eftirfylgni.
Fræðslustefna Skólamatar
Skólamatur leggur áherslu á markvissa og stöðuga fræðslu starfsfólks, bæði til að efla hæfni þess í starfi og stuðla að persónulegum þroska og vellíðan. Fræðslan byggir meðal annars á greiningu á fræðsluþörf fyrirtækisins, frumkvæði stjórnenda og hugmyndum starfsfólks. Markmiðið er að auka þekkingu og öryggi í starfi, auðvelda starfsfólki að takast á við breytingar og ný verkefni og stuðla um leið að jákvæðu viðhorfi til símenntunar.
Árleg námsvika er mikilvægur hluti stefnunnar og fyrirtækið hefur jafnframt átt í samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum um fræðslu og ráðgjöf. Þannig er leitast við að gera fræðslu að reglulegum og markvissum þætti í starfsemi fyrirtækisins.
Fræðslustefna Arion Banka
Arion banki skilgreinir sig sem lærdómsfyrirtæki þar sem markviss fræðsla og þjálfun á að efla og viðhalda þekkingu og hæfni starfsfólks. Fræðslan tekur mið af þörfum og stefnu fyrirtækisins en jafnframt af þróun starfa og verkefna. Áhersla er bæði á faglega og persónulega hæfni og starfsfólk er hvatt til að sýna frumkvæði og bera ábyrgð á eigin þekkingu og færni.
Fræðslunni er skipt í skyldubundna og valkvæða fræðslu. Skyldufræðsla tekur meðal annars mið af lögum, reglum og öryggiskröfum en nær einnig til nýliða, stjórnenda og fræðslu um vörur fyrirtækisins. Athyglisvert er að þátttaka í skyldufræðslu myndar fræðsluvísitölu sem er einn af lykilmælikvörðum fyrirtækisins. Jafnframt er boðið upp á fjölbreytt fræðsluform, svo sem rafræna og leikjavædda fræðslu og staðkennslu.
Stefnan tengir þannig fjárfestingu í þekkingu og hæfni starfsfólks við getu bankans til að takast á við breytingar og nýjar áskoranir, en einnig við starfsþróun, starfsánægju og góða þjónustu við viðskiptavini.
Að lokum
Fræðslustefna þarf ekki að vera flókin til að hafa gildi. Mikilvægast er að hún endurspegli raunverulegar áherslur fyrirtækisins, taki mið af því hvert það stefnir og hvaða hæfni þarf til að komast þangað. Hún þarf jafnframt að vera þekkt meðal starfsfólks og birtast í verki.
Stjórnendur mega ekki heldur gleyma sjálfum sér í þessari vegferð. Þeir bera ríka ábyrgð á að skapa umhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að læra og þróast en þurfa um leið að huga markvisst að eigin starfsþróun. Breyttar kröfur, ný tækni og sífellt flóknara starfsumhverfi kalla ekki aðeins á nýja hæfni starfsfólks heldur einnig þeirra sem leiða það.
Fræðslustefna ætti því að ná til allra. Þegar stöðugt nám og þróun verða eðlilegur hluti af starfseminni skapast menning þar sem fyrirtækið og fólkið sem þar starfar þróast saman.
Nánar:
Fræðslustefna Beru og Ölgerðarinnar
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Um Starfsafl:
Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma. Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.
Myndin með fréttinni er fengin hér