Í kjölfar fréttar Starfsafls frá 10. september síðastliðnum um breytingar á reglum um styrki til tungumálanáms hafa sjóðnum borist ábendingar og athugasemdir frá fræðsluaðilum og félagsfólki. Stjórn Starfsafls telur því rétt að gera nánari grein fyrir forsendum ákvörðunarinnar og þeim sjónarmiðum sem liggja að baki.
Breytt fræðsluumhverfi kallar á skýrari viðmið
Fræðsluumhverfið hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Samsetning félagsfólks hefur orðið fjölbreyttari og framboð fræðslu aukist verulega, bæði hvað varðar viðfangsefni, kennsluform og fjölda þeirra sem bjóða fræðslu hérlendis og erlendis. Þessi þróun hefur kallað á skýrari viðmið um styrkhæfi fræðslu og auknar kröfur um að hægt sé að leggja hlutlægt mat á þá starfsemi sem sótt er um styrki til.
Starfsafl hefur á undanförnum mánuðum unnið að heildstæðri endurskoðun úthlutunarreglna sinna. Sú vinna hefur náð til fleiri þátta en tungumálanáms og miðar meðal annars að því að skýra hvaða fræðsla er styrkhæf, tryggja jafnræði við afgreiðslu umsókna og stuðla að ábyrgri ráðstöfun fjármuna sjóðsins.
Áhersla á viðurkennda menntun og varanlegt gildi náms
Megin áherslan í endurskoðun stjórnar á úthlutunarreglum Starfsafls hefur verið að tryggja að nám sem sjóðurinn styrkir með starfsmenntastyrkjum leiði til formlegrar viðurkenningar á þeirri þekkingu og hæfni sem einstaklingar afla sér. Markmiðið er að félagsfólk geti fengið nám sitt staðfest og metið samkvæmt viðurkenndum viðmiðum, þannig að það nýtist til frekari menntunar, starfsþróunar og aukinna tækifæra á vinnumarkaði. Með því er lögð áhersla á að fjárfesting í menntun skili einstaklingum ekki aðeins aukinni þekkingu heldur einnig viðurkenningu sem þeir geta byggt á til framtíðar.
Með því er lögð áhersla á að fjárfesting í menntun skili einstaklingum ekki aðeins aukinni þekkingu heldur einnig viðurkenningu sem þeir geta byggt á til framtíðar.
Þessi áhersla hefur verið eitt af meginleiðarljósum breytinganna. Hún tengist jafnframt þeirri ákvörðun að skýra betur hvaða forsendur liggja að baki styrkveitingum og hvernig ábyrgð á mati og viðurkenningu fræðslustarfsemi skiptist milli aðila.
Starfsmenntasjóðir eru styrkveitendur en ekki eftirlitsaðilar
Um nokkurt skeið hefur Starfsafl haldið úti sérstökum lista yfir samþykkta fræðsluaðila. Á þeim tíma hefur verið leitast við að þróa verklag og viðmið sem gera sjóðnum kleift að leggja mat á fræðsluaðila með samræmdum og málefnalegum hætti. Reynslan hefur hins vegar sýnt að þrátt fyrir þær leiðir sem reyndar hafa verið fylgir slíku fyrirkomulagi umfangsmikið mat, umsýsla og ábyrgð sem sjóðurinn hefur takmarkaðar forsendur til að sinna. Með sífellt fjölbreyttara fræðsluframboði hefur jafnframt orðið erfiðara að tryggja að mat á fræðsluaðilum byggist á nægilega traustum og sambærilegum forsendum.
Starfsmenntasjóðir eru fyrst og fremst styrkveitendur en ekki viðurkenningar- eða eftirlitsaðilar með fræðslustarfsemi. Að vandlega ígrunduðu máli og á grundvelli þeirrar reynslu sem fengist hefur ákvað stjórn Starfsafls því að hætta að halda úti sérstökum lista yfir samþykkta fræðsluaðila frá næstu áramótum.
Mikilvægt er að árétta að ákvörðunin felur ekki í sér neikvætt mat á gæðum kennslu eða hæfni þeirra fræðsluaðila sem hafa verið á listanum. Hún snýr að hlutverki og ábyrgð sjóðsins, en ekki einstökum kennurum eða fræðslufyrirtækjum.
Íslenskunám er mikilvægt en ábyrgðin verður að vera skýr
Stjórn Starfsafls gerir sér fulla grein fyrir mikilvægi íslenskunáms fyrir fólk af erlendum uppruna, bæði til þátttöku á vinnumarkaði og í samfélaginu almennt. Sjóðurinn hefur um árabil lagt verulega fjármuni til íslenskukennslu og mun áfram styðja slíkt nám innan þeirra reglna sem um styrkveitingar gilda.
Jafnframt er ljóst að íslenskunám er samfélagslegt hagsmunamál sem nær langt út fyrir starfssvið starfsmenntasjóða. Ábyrgð á því að tryggja aðgengi að íslenskukennslu og móta umgjörð um slíkt nám verður ekki lögð á starfsmenntasjóðina eina. Þar gegna stjórnvöld lykilhlutverki, bæði hvað varðar stefnumótun, fjármögnun og viðurkenningu fræðsluaðila.
Starfsafl er meðvitað um að núverandi fyrirkomulag opinberrar viðurkenningar fræðsluaðila kann að henta illa ákveðnum tegundum fræðslustarfsemi, svo sem einkakennslu og fjarkennslu. Slíkt er umhugsunarefni og mikilvægt að það fái viðeigandi umfjöllun. Það er hins vegar ekki á færi Starfsafls að breyta þeim skilyrðum sem stjórnvöld setja um viðurkenningu fræðsluaðila eða koma á sjálfstæðu viðurkenningarkerfi í þeirra stað.
Ábyrg meðferð fjármuna og jafnræði félagsfólks
Starfsafl er sameiginlegur starfsmenntasjóður atvinnurekenda og stéttarfélaga. Stjórn sjóðsins, sem skipuð er fulltrúum beggja aðila, ber ábyrgð á úthlutunarreglum og ráðstöfun fjármuna. Stéttarfélögin annast afgreiðslu einstaklingsstyrkja í umboði sjóðsins.
Hlutverk Starfsafls er að styðja við starfsmenntun og hæfniþróun félagsfólks í samræmi við tilgang sjóðsins. Því hlutverki fylgir sú skylda að setja skýr og málefnaleg skilyrði fyrir styrkveitingum og gæta þess að sambærileg mál hljóti sambærilega afgreiðslu.
Stjórn sjóðsins verður jafnframt að horfa til heildarhagsmuna félagsfólks og tryggja að fjármunir nýtist í samræmi við markmið sjóðsins. Þótt breytingar á reglum geti haft áhrif á starfsemi einstakra fræðsluaðila verður sú ábyrgð að vera leiðarljós við ákvarðanatöku.
Áframhaldandi stuðningur við starfsmenntun
Stjórn Starfsafls skilur þær áhyggjur sem fram hafa komið og gerir sér grein fyrir því að breytingarnar geta haft áhrif á aðgengi að ákveðnum kennsluformum, einkum einstaklingsmiðaðri íslenskukennslu. Þau sjónarmið eru mikilvæg og eiga erindi í umræðu um hvernig stjórnvöld geta þróað viðurkenningarkerfi sem tekur mið af fjölbreyttum kennsluháttum og breyttum þörfum samfélagsins.
Ákvörðun stjórnar Starfsafls byggir hins vegar á þeirri grundvallarafstöðu að sjóðurinn eigi að sinna því hlutverki sem honum er ætlað, að styðja við starfsmenntun og hæfniþróun, en ekki taka að sér viðurkenningar- og eftirlitshlutverk sem fellur utan starfssviðs hans.
Stjórn Starfsafls mun áfram leggja áherslu á að styrkir sjóðsins nýtist félagsfólki sem best, með skýrum reglum, jafnræði og ábyrgri meðferð fjármuna.
Fyrir hönd stjórnar Starfsafls,
Jóhann Kristjánsson, formaður
Um Starfsafl:
Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma. Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Myndin með fréttinni er fengin hér