Fræðslumolar og verkfæri

Á vef Starfsafls má finna ýmsar greinar, fræðslumola, og annað efni sem getur gagnast þeim sem vilja skoða sín fræðslu- og starfsþróunarmál.  Til að mynda er þar að finna handbók á rafrænu formi um leiðir að árangursríkri fræðslu og þjálfun. I handbókinni er að finna kafla sem taka meðal annars á eftirfarandi:

  • Ferli fræðsluáætlunar
  • Stefnumiðuð þróun mannauðs
  • Þarfagreining fræðslu og þjálfunar
  • Samstilling aðferða til árangurs
  • Væntingaskil

Handbókin er hagnýtt verkfæri og getur auðveldað mörgum fyrstu skrefin þegar kemur að gerð fræðsluáætlunar.  Hér má hafa í huga að handbókin er leiðbeinandi og fyrir þá sem eru með minni rekstrareiningar er vel hægt að fara einfaldari og skemmri leiðir.

Á vefsíðu Starfsafls má síðan finna einfalt sniðmát fyrir fræðsluáætlun auk þess sem þar er að finna sýnishorn af útfylltri fræðsluáætlun. Sniðmátið er hægt að aðlaga að þörfum, stækka, minnka eða breyta á hvern þann hátt sem hentar rekstrarforminu, fjölbreytni starfa og fjölda starfsmanna. 

Á vefsíðu Starfsafls má lesa hvaða þættir það eru sem eru styrkhæfir en fyrirtæki sem greiða af starfsfólki til Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar, geta sótt um styrki vegna námskeiðahalds til Starfsafls.

Starfsafl styrkir að öllu jöfnu fyrirtæki um 75% af kostnaði fyrir sína félagsmenn og geta fyrirtæki sótt um allt að þrjár milljónir króna á ári.  Skilyrði er að sá starfsmaður (eða starfsmenn) sem sótt er um styrk vegna hafi verið starfandi hjá fyrirtækinu þegar námskeið fór fram, nafn hans og kennitala komi fram á reikningi (eða fylgiskjali) þar sem fyrirtækið er tilgreindur greiðandi og iðgjöld hafi borist viðkomandi stéttafélagi.  Athugið að út árið 2022 er endurgreiðslan 90% af kostnaði.

Fræðslumolar á vef Starfsafls tengdir fræðslu og gætu gagnast:

Þá viljum við benda á fræðslutorgi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar  en þar má finna ýmsislegt gagnlegt, þar með talið nokkur góð ráð fyrir stjórnendur um stafræna fræðslu.

Hér má lesa nánar  8 góð ráð fyrir stjórnendur um stafræna fræðslu.

Myndin með fréttinni er fengin hér

* Öll fyrirtæki sem greiða iðgjöld af starfsfólki til Eflingar, VSFK eða Hlífar, geta sótt um í sjóðinn. Hámark veittra styrkja á almanaksári er 3 milljónir króna