Fulltrúar tveggja fræðslusjóða undirrituðu samning við AÞ-Þrif ehf. að lána fyrirtækinu fræðslustjóra. Sjóðirnir eru Starfsafl og Starfsmenntasjóður verslunarinnar. Sverrir Hjálmarsson ráðgjafi frá Vexti-mannauðsráðgjöf ehf. er fræðslustjóri að láni og mun hann vinna þarfagreiningu og kortleggja hæfni og þjálfunarþörf starfsmanna fyrirtækisins. AÞ-Þrif ehf. er hreingerningafyrirtæki sem formlega tók til starfa í júlí 2006. Helsta sérsvið fyrirtækisins […]
Category: Almennar fréttir
Fræðslustjóri til Arctic Adventures
Í gær undirrituðu fulltrúar tveggja fræðslusjóða samning við Arctic Adventures að lána fyrirtækinu fræðslustjóra. Sjóðirnir eru Starfsafl og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks. Rakel Steinvör Hallgrímsdóttir, ráðgjafi frá IÐUNNI – fræðslusetri er fræðslustjóri að láni og mun hún vinna þarfagreiningu og kortleggja hæfni og þjálfunarþörf starfsmanna fyrirtækisins. Hjá Artic Adventures starfa um 90 manns sem sérhæfa sig […]
Fræðslustjóri til Northern Light Inn
Í gær undirrituðu fulltrúar þriggja fræðslusjóða samning við Northern Light Inn um að lána fyrirtækinu fræðslustjóra. Sjóðirnir eru Landsmennt, Starfsafl og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks. Birna Vilborg Jakobsdóttir og Ragnheiður Eyjólfsdóttir frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) eru fræðslustjórar að láni. Fræðslustjóranum er ætlað að aðstoða fyrirtækið við að kortleggja hæfni og þjálfunarþörf starfsmanna fyrirtæksins. […]
Fundur SA um raunfærnimat 16. feb.
Aðilar vinnumarkaðarins eru að hefja vinnu svo hægt sé að meta nám eða raunfærni eftir tiltekinni aðferðafræði. Þriðjudaginn 16. feb. kl 8.30-9.30 verður haldinn morgunverðarfundur um efnið í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. 1. hæð. Eftirtaldir einstaklingar halda stutt erindi: Staðan í ljósi nýrra kjarasamningaÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs SA. Hæfnigreining starfa Haukur Harðarson, […]
Icelandair Hotels menntafyrirtæki ársins
Icelandair Hotels er menntafyrirtæki ársins 2016. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra afhenti í morgun menntaverðlaun atvinnulífsins á menntadegi atvinnulífsins sem var haldinn í þriðja sinn á Hilton Reykjavík Nordica. Í rökstuðningi dómnefndar segir að hjá Icelandair Hotels sé unnið af mikilli fagmennsku og metnaði að fræðslumálum starfsmanna. Þar starfa að meðaltal um 700 manns af […]
Securitas menntasproti ársins
Securitas var valinn menntasproti ársins en mikið og öflugt frumkvöðlastarf er unnið í fræðslumálum hjá fyrirtækinu. Securitas hefur tileinkað sér nýjustu tækni í miðlun fræðslu og náð mjög góðum árangri í svokallaðri speglaðri kennslu. Verðlaunaafhendingin fór fram á Menntadegi atvinnulífsins sl. fimmtudag. „Við hjá Securitas erum afar hreykin og þakklát fyrir að vera valin menntasproti atvinnulífsins […]
Menntadagur atvinnulífsins 28. jan.
Á morgun, fimmtudaginn 28. jan. verður haldinn Menntadagur atvinnulífsins á Hilton Reykjavík Nordica. Menntadagurinn er samstarfsverkefni Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. Sameiginleg dagskrá er frá kl. 8.30-10 en kl. 10.30-12 er boðið upp á fjölbreyttar málstofur þar sem samtökin fjalla um brýnustu menntamálin innan einstakra […]
Ný símanúmer Starfsafls frá 19. jan.
Starfsafl mun breyta um símanúmer frá 19. jan. 2016 í tengslum við innleiðingu stafræns símakerfis. Jafnframt verða gömlu númerin aftengd. Nýju númerin eru: 510 7550 (Sveinn) 510 7551 (Valdís) Nýja kerfið býður upp á nýja möguleika á bættri þjónustu við viðskiptamenn sjóðsins og er það von okkar að við getum veitt enn betri þjónustu en […]
Kynning á Áttin.is um land allt
Í næstu viku verða haldnir kynningarfundir á Áttin.is – nýrri vefgátt fræðslusjóða atvinnulífsins þar sem 8 fræðslusjóðir bjóða þjónustu sína. Fyrirtæki eiga nú kost á að senda eina umsókn til eins, nokkurra eða allra sjóðanna, allt eftir stéttarfélagsaðild starfsmannahópsins. Verkefnið er samvinna ASÍ og SA og kostað af fræðslusjóðunum. Boðskort hafa þegar verið send á […]
Fosshótel Reykjavík fær fræðslustjóra
Starfsafl og IÐAN fræðslusetur skrifuðu undir samning í morgun við Fosshótel Reykjavík um að lána fyrirtækinu fræðslustjóra. Attentus – mannauður og ráðgjöf ehf er fræðslustjóri að láni. Fræðslustjóranum er ætlað að aðstoða fyrirtækið við að kortleggja hæfni og þjálfunarþörf starfsmanna fyrirtæksins. Fosshótel Reykjavík er eitt nýjasta hótelið í Reykjavík og jafnframt það stærsta, glæsilegt fjögurra stjörnu hótel með ráðstefnuaðstöðu, veitingasölum, veitingastöðum […]