Þarfagreining fyrir hópferðabílstjóra

bilstjoriStarfsafl ásamt Efling, VSFK og  Hlíf hafa tekið höndum saman um að ráðast í og fjármagna hæfni- og þarfagreiningu á fræðslu fyrir hópferðabílstjóra.  Ástæða þess er breytt starfsumhverfi hópferðabílstjóra, sem m.a. er tilkominn vegna vaxtar í ferðaþjónustu, og þá aukinn fjölbreytileiki starfa sem kallar á viðeigandi fræðslu.
 

Óskað var eftir því við Mímir Símenntun, fræðslufyrirtæki á sviði framhaldsfræðslu og starfsmenntunar,  að leiða verkefnið og sjá um greininguna.  Það felur í sér  að leitað verður til fyrirtækja og starfsmanna í greininni sem leggja til vitneskju um störf hópferðabílstjóra, svokallaða hæfnigreiningu,  sem þá er höfð til grundvallar þarfagreiningunni.  Svo hægt sé að fá raunsanna mynd af störfunum og fjölbreytileika þeirra er mikilvægt að fá stjórnendur jafnt sem bílstjóra frá mismunandi fyrirtækjum til að leggja vinnunni lið sem og atvinnurekendur. 

Að lokinni þarfagreiningunni verður rituð námsskrá og þá standa vonir til þess að hægt verði að ráðast í gerð raunfærnimats  og nám  fyrir hópferðabílstjóra sem hafa á því áhuga og vilja efla sig í starfi. 

 
Samkvæmt samningi sem  var undirritaður fyrir helgi, verður hafist handa við hæfni- og þarfagreininguna í byrjun árs 2017 og lokið fyrir 1. apríl.