Styrkir til íslenskukennslu í umsjá RANNÍS

13475100_10208656992118718_4429340311865765839_o

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur undanfarin ár veitt styrki til íslenskukennslu fyrir útlendinga sem hingað kjósa að koma til að búa og starfa.

Árið 2015 var afgreiðslu þessara styrkja breytt og er nú sótt um þá til RANNÍS. Þá er aðeins einn umsóknarfrestur í ár, til 6. desember nk. en áður voru þeir tveir.   Aðeins viðurkenndir fræðsluaðilar geta sótt um styrk og ber að vekja athygli á því. Þá þurfa fyrirtæki  sem hyggjast halda námskeið fyrir sitt fólk að vera  í samstarfi við viðurkennda fræðsluaðila til að geta fengið styrk til þess frá MMR, sjá nánar hér 

Starfsmenntasjóðir almennra starfsmanna hafa þá styrkt fyrirtæki og einstaklinga þegar styrk ráðuneytisins sleppir sbr. reglur þar um.

Rannís birtir lista yfir styrkþegar í ársskýrslu um styrki til íslenskukennslu. Á árinu 2015 fengu 19 fræðsluaðilar styrki til íslenskukennslu fyrir útlendinga það ár,  samtals 107 milljónir króna, sjá nánar hér

 Ástæða er til að vekja athygli  forráðamanna fyrirtækja sem hyggjast sækja um styrki til starfsmenntasjóða  á þessu  fyrirkomulagi á styrkveitingum ráðuneytisins til íslenskukennslu.