Lísbet Einarsdóttir

Starfsafl styrkir Rauða krossinn

Starfsafl styrkir Rauða krossinn

Rauði krossinn er leiðandi aðili í útbreiðslu skyndihjálpar um allan heim og hefur umsjón með málaflokknum hér á landi skv. samningi við stjórnvöld. Hlutverk félagsins er m.a. að annast þjálfun leiðbeinenda, bjóða upp á fjölbreytt skyndihjálparnámskeið, útgáfa fræðsluefnis fyrir almenning auk þess að halda úti heimasíðunni skyndihjalp.is svo fátt eitt sé talið.   Rauði krossinn telur […]

Þernur og dyraverðir – Starfsafl styrkir 75%

Þernur og dyraverðir – Starfsafl styrkir 75%

Á næstu vikum hefjast tvö námskeið á vegum Mímis símenntunar sem sett voru upp að beiðni Starfsafls og Eflingar. Um er að ræða námskeið fyrir þernur og námskeið fyrir dyra- og næturverði en eftir því hefur verið kallað af hálfu rekstraraðila og félagsmanna. Bæði námskeiðin verða styrkt eins og reglur Starfsafls segja til um fyrir félagsmenn […]

Mikill fjöldi umsókna í upphafi árs

Mikill fjöldi umsókna í upphafi árs

Nú þegar liðnar eru tvær vikur af nýju ári er ljóst að fræðslu- og starfsmenntamál fyrirtækja eru í blóma sem fyrr og  fyrirtæki vel meðvituð um þá styrki sem hægt er að sækja um til Starfsafls. Í dag hafa borist 15 umsóknir og nemur samanlögð styrkupphæð á aðra milljón króna en aðeins ein umsókn barst sjóðnum á […]

Menntadagur atvinnulífsins 2017

Menntadagur atvinnulífsins 2017

Menntadagur atvinnulífsins 2017 verður haldinn fimmtudaginn 2. febrúar n.k.  á Hilton Reykjavík Nordica og ber yfirskriftina „Nýjasta máltækni og vísindi“. Þetta er í fjórða sinn sem menntadagur atvinnulífsins er haldinn en hann er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.    Einnig verður […]

Hvalaskoðun Reykjavíkur styrkt

Hvalaskoðun Reykjavíkur styrkt

Greiddur hefur verið styrkur til Hvalaskoðunar Reykjavíkur að upphæð kr. 766.875,- og nær sá styrkur til 35 félagsmanna.  Styrkurinn er vegna námskeiða sem voru á vegum Slysavarnaskóla sjómanna og tók til mannauðasstjórnunar skipa, hóp og neyðarstjórnunar og öryggisfræðslu, svo dæmi séu tekin.   Að jafnaði styrkir Starfsafl 75% af kostnaði við fræðsluaðila og greiðir aðeins […]

Rafræn fræðsla nýjung hjá sjóðnum

Rafræn fræðsla nýjung hjá sjóðnum

Framkvæmdastjóri Starfsafls, Lísbet Einarsdóttir, segir frá  þeirri nýjung hjá sjóðnum að styrkja rafræna fræðslu innan fyrirtækja, í nýjasta fréttablaði Eflingar.   Breytt umhverfi kallar á breytt verklag en rafræn fræðsla felur m.a. í sér mikinn sveigjanleika fyrir fyrirtæki og starfsmenn.  Þá hefur sjóðurinn einnig tekið upp svokallaða hvatastyrki og er hann hugsaður fyrir fyrirtæki sem eru […]

Áhugavert klasasamstarf

Áhugavert klasasamstarf

Í viðtal við Valdísi Önnu Steingrímsdóttur, verkefnastjóra Starfsafls í fréttablaði Eflingar, segir hún frá áhugaverðu klasasamstarfi fyrirtækja í ferðaþjónustu í Hveragerði.   Samstarfið felur í sér samnýtingu á fræðslustjóra að láni og koma sex fyrirtæki að verkefninu.   Starfsafl er bakhjarl verkefnisins ásamt Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks,Valdís Anna er verkefnastjóri þess og ráðgjafi verkefnisins er Sverrir Hjálmarsson frá Vexti […]

Fréttablað Eflingar í fræðslugír

Fréttablað Eflingar í fræðslugír

Í nýjasta fréttablaði Eflingar, sem kom út nú í vikunni, er gerð góð grein fyrir þeirri fræðsludagskrá sem fyrirhuguð er fram á vorið fyrir félagsmenn Eflingar.    Starfsafl mælir með því að þeir sem fara með fræðslu- og starfsmenntamál innan sinna fyrirtækja, kynni sér dagskrána og komi henni á framfæri þar sem það á við.  […]

5 milljónir til fyrirtækja

5 milljónir til fyrirtækja

Á síðasta mánuði ársins 2016, frá 7 desember til ársloka, bárust 35 umsóknir til Starfsafls frá 18 fyrirtækjum. Sem fyrr er fjölbreytnin talsverð og aukning í umsóknum frá fyrirtækjum í ferðaþjónustu, en af þeim 18 fyrirtækjum sem sóttu um styrk til sjóðsins eru 17 í ferðaþjónustu.   Sé litið nánar til þeirra umsókna sem bárust […]

Starfsafl styrkir Samskip

Starfsafl styrkir Samskip

Greiddur hefur verið styrkur til Samskipa að upphæð kr. 581.175,- og var þar um að ræða styrk vegna endurmenntunarnámskeiða fyrir atvinnubílstjóra sem starfa hjá fyrirtækinu. Um fræðsluna sá Framvegis, miðstöð símenntunar. Lögum samkvæmt ber atvinnubílstjórum, með ökuréttindi til að aka stórum ökutækjum í atvinnuskyni, að taka reglubundna endurmenntun vilji þeir viðhalda sínum réttindum og er það […]