Aukin áhrif tækninýjunga og rafrænna lausna í námi hafa aukist mikið s.l. ár og er fræðsla innan fyrirtækja þar ekki undanskilin. Með aukinni notkun snjalltækja er hægt að færa fræðsluna nær starfsmanninum og hans vinnustað sem felur í sér mikið hagræði, bæði fyrir starfsmanninn og fyrirtækið sem hann starfar hjá. Þeir kostir sem rafræn fræðsla […]
Category: Almennar fréttir
Ársfundur Starfafls, taktu daginn frá
Ársfundur Starfsafls verður haldinn fimmtudaginn 9. maí nk. kl. 13:30 – 15:30 á Vox Club, Hilton Reykjavík Nordica. Að þessu sinni er yfirskrift fundarins þarfagreining fræðslu. Við hvetjum áhugasama til að taka daginn frá en fundurinn er alla jafna vel sóttur enda viðburður sem er sannarlega kominn til að vera. Að loknum fundi verður boðið […]
Góður marsmánuður hjá Starfsafli
35 umsóknir voru teknar til afgreiðslu í marsmánuði, svo segja má að mánuðurinn hafi verið alveg ágætur. Af þessum 35 umsóknum voru 33 styrkir afgreiddir með greiðslu styrkja og var heildarfjárhæð rétt um 2.7 milljónir. Á bak við þá upphæð eru engu að síður hátt í 400 félagsmenn en það er alltaf ánægjulegt að sjá […]
Er Starfsafl þinn bakhjarl?
Símenntun starfsmanna er lykill fyrirtækja að betra starfsumhverfi, hæfara starfsfólki og getur styrkt samkeppnisstöðu þeirra. Þar er Starfsafl sterkur bakhjarl. Starfsafl fræðslusjóður var stofnaður á grundvelli kjarasamninga árið 2000. Sjóðurinn er í eigu Samtaka atvinnulífsins annars vegar og Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélagas Keflavíkur og nágrennis hins vegar. Starfsafl styrkir […]
ALP hf fær Fræðslustjóra að láni.
Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við Alp hf. Fyrirtækið rekur bílaleigur undir merkjum AVIS um land allt sem gerir viðskiptavinum fyrirtækisins kleyft að leigja bíl á einum stað og skila honum á öðrum. Einkunnarorð fyrirtækisins eru „Að gera betur“ og endurspeglast þau einkunnarorð heilt yfir í rekstrinum, þar með talið í […]
Saga Travel fær Fræðslustjóra að láni
Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við Saga Travel ehf á Akureyri. Saga Travel er norðlenskt ferðaþjónustufyrirtæki með höfuðstöðvar sínar á Akureyri en jafnframt með starfsstöð í Reykjavík. Fyrirtækið býður upp á fjölbreytt úrval dagsferða og pakkaferða frá Akureyri og Mývatni undir leiðsögn reynslumikilla fararstjóra. Markmið Saga Travel er að veita fjölbreytta […]
Aldrei fleiri umsóknum hafnað í einum mánuði
Fjöldi umsókna í febrúar voru alls 38 frá 19 fyrirtækjum. 9 umsóknum var hafnað en það er óvenju hátt hlutfall. Höfnun umsókna getur verið vegna eftirtalinna þátta: Enginn félagsmanna hjá okkur Komin í leyfilegt hámark Röng kennitala Umsækjandi stofnaði óvart nýja umsókn Vantar upplýsingar um stéttarfélag Reikningurinn ekki skráður á fyrirtækið Umsækjandi er atvinnurekandi Umsókn […]
Raunfærnimat fyrir pólska innflytjendur
Kynningarfundur um raunfærnimat fyrir pólska innflytjendur sem starfa í húsasmíði, málaraiðn eða sem matartæknar verður haldinn fimmtudaginn 28. febrúar kl. 18 hjá IÐUNNI fræðslusetri Vatnagörðum 20, 104 Reykjavík. Túlkur verður á fundinum. Raunfærnimati er ætlað að meta þá færni og þekkingu sem þú hefur öðlast í starfi og er metið á móti námskrá í iðngrein. […]
Bed and Breakfast fær Fræðslustjóra að láni
Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við Gistiheimilið Bed and Breakfast í Reykjanesbæ. Gistiheimilið er það stærsta á svæðinu og vel staðsett við Keflavíkurflugvöll. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 20 talsins og verkefnið að fullu styrkt af Starfsafli. Verkefnið felur í sér að sjóðirnir leggja til “Fræðslustjóra að láni”, fræðslu- og mannauðsráðgjafa, sem […]
Menntaverðlaun atvinnulífsins 2019
Læsi í ýmsum myndum var til umfjöllunar á Menntadegi atvinnulífsins sem fram fór í Hörpu fimmtudaginn 14. febrúar sl. Margt var um manninn og mikil ánægja með þennan viðburð sem hefur svo sannarlega fest sig í sessi í íslensku atvinnulífi. Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt fyrirtækjum sem skara fram úr á sviði fræðslu- og menntamála. Höldur […]