Lísbet Einarsdóttir

180 milljónir til fyrirtækja og einstaklinga

180 milljónir til fyrirtækja og einstaklinga

Mikilvægi sí- og endurmenntunar verður seint metið að verðleikum enda sterk tengsl menntunar við velferð, hagsæld og jöfnuð. Nám, hvort heldur  um er að ræða styttri námskeið eða lengra nám, getur oft verði kostnaðarsamt  og ekki allra að fjármagna. Þar af leiðir er mikilvægt fyrir alla að geta nýtt áunninn styrk í starfsmenntasjóð og þannig […]

Spjallað um fræðslu í hlaðvarpi Iðunnar

Spjallað um fræðslu í hlaðvarpi Iðunnar

Nýverið var Lísbetu Einarsdóttur framkvæmdastjóra Starfsafls boðið í hlaðvarp IÐUNNAR, Augnablik í iðnaði, til að ræða meðal annars fræðslustyrki til fyrirtækja, vefgátt sjóða og fræðslustjóra að láni, svo fátt eitt sé talið. Í kynningu Iðunnar segir; Lísbet Einarsdóttir framkvæmdastjóri Starfsafls kom í hlaðvarp IÐUNNAR, Augnablik í iðnaði, til að ræða Áttina. Þar fórum við yfir […]

Skrifstofa Starfsafls lokuð til 13. september

Skrifstofa Starfsafls lokuð til 13. september

Skrifstofa Starfsafls er lokuð 1. til 13. september vegna síðbúinna sumarleyfa.  Umsóknir fyrirtækja er sem fyrr hægt að leggja inn á www.attin.is og verða þær umsóknir sem berast á fyrrgreindum tíma afgreiddar fyrir 20. september.  Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga. Sólarkveðja. Myndin er fengin hér

Skeljungur hf fær Fræðslustjóra að láni

Skeljungur hf fær Fræðslustjóra að láni

Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við Skeljung hf. Tveir sjóðir koma að verkefninu og greiða þeir hlutfallslega fyrir félagsmenn sinna stéttafélaga en hjá fyrirtækinu eru starfandi 240 einstaklingar, þar af 38 sem eru félagsmenn Eflingar.  Helmingur þeirra starfar við akstur. Skeljungur dreifir eldsneyti til fyrirtækja sem ekki hafa tækifæri til að […]

Stafræn fræðsla einnig styrkt

Stafræn fræðsla einnig styrkt

Í heimsfaraldri hafa mörg fyrirtæki farið þá leið að bjóða upp og stafræna fræðslu, bæði í beinu streymi og með aðkeyptu efni.  Að gefnu tilefni viljum við minna á að slíka fræðsla er styrkt alveg til jafns við alla aðra fræðslu.  Sótt er venju samkvæmt  um styrk á vefgátt sjóða og með umsókn þarf að […]

Viltu fá aðstoð við fræðslumálin?

Viltu fá aðstoð við fræðslumálin?

Nú eru margir rekstraraðilar komnir aftur til vinnu eftir sumarfrí og farnir að huga að fræðslu fyrir sitt starfsfólk. Einhver fyrirtæki hafa að skipa mannauðs- eða fræðslustjóra sem er sérstaklega menntaður í þeim fræðum en í flestum tilfellum er ekki svo. Þá er gott að geta leitað sér aðstoðar, fyrirtækinu að kostnaðarlausu.   Viltu aðstoð ? […]

Skrifstofa Starfsafls lokuð vegna sumarleyfa

Skrifstofa Starfsafls lokuð vegna sumarleyfa

Skrifstofa Starfsafls verður lokuð vegna sumarleyfa  9. til 23. ágúst 2021 Umsóknir fyrirtækja er sem fyrr hægt að leggja inn á www.attin.is og verða þær umsóknir sem berast á fyrrgreindum tíma afgreiddar fyrir lok ágúst. Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga. Sólarkveðja.

Tiltekt í rólegum júlímánuði

Tiltekt í rólegum júlímánuði

Júlímánuður var með rólegra móti enda margir í sumarfríi. Það er hinsvgar áhugavert að þeir rekstraraðilar sem sækja um styrki vegna fræðslu fyrirtækja yfir sumarmánuðina eru oftar en ekki í tiltekt, þ.e. margar umsóknir berast frá fáum fyrirtækjum. Það er jákvætt og vert að minna á að reikningar vegna fræðslu geta verið allt að ársgamlir […]

Ókeypis vefnámskeið um gervigreind

Ókeypis vefnámskeið um gervigreind

Gervigreindaráskorunin Elemennt er opið vefnámskeið fyrir alla áhugasama í boði ríkisstjórnar Íslands.  Námskeiðið er um grunnatriði gervigreindar og hluti af aðgerðaráætlun til að mæta fjórðu iðnbyltingunni.  Markmið verkefnisins eru: Að gera þekkingu á gervigreind aðgengilega fyrir alla svo fólk finni kraft og tækifæri í nýrri tækni, fremur en ógn Að valdefla íslensku þjóðina og auka […]

Fræðslustjóri að láni fyrir þitt fyrirtæki?

Fræðslustjóri að láni fyrir þitt fyrirtæki?

Fræðslustjóri að láni er góð leið fyrir fyrirtæki til að koma fræðslu- og starfsmenntamálum í farveg, fá aðra sýn á fræðslustefnu fyrirtækisins, velta við steinum og horfa til framtíðar en aldrei fyrr hefur verið jafn mikilvægt að undirbúa starfsfólk fyrir verkefni morgundagsins. Fjöldi fyrirtækja hefur farið þá leið að fá Fræðslustjóra að láni og þannig […]