Breytingar á reglum vegna einstaklingstyrkja frá og með 1. júní 2026

Stjórn Starfsafls hefur lokið heildarendurskoðun á reglum sjóðsins vegna einstaklingsstyrkja. Nýjar reglur taka gildi 1. júní og fela í sér umfangsmiklar breytingar. 

Markmið breytinganna er að skýra betur hvað telst til starfsmenntunar og hvað fellur utan þess ramma auk þess að tryggja að styrkir nýtist sem best til eflingar starfstengdrar færni og hæfni félagsfólks á vinnumarkaði.

Styrhæf starfsmenntun mun hér eftir eingöngu taka til náms sem fer fram hér á landi hjá viðurkenndum fræðsluaðilum. Undantekning frá þeirri reglu verður tungumálanám sem áfram verður styrkt, fari það fram hjá viðurkenndum fræðsluaðilum eða öðrum aðilum sem samþykktir eru af starfsmenntasjóðum.  Hámarksstyrkur vegna íslenskunáms verður 180.000,- á ári. 

Með breytingunum falla einnig tómstundastyrkir niður og í þeirra stað koma hagnýtir fræðslustyrkir.

Hagnýtir fræðslustyrkir verða veittir vegna náms, námskeiða og ráðstefna sem fara fram hér á landi og eru til þess fallin að efla félagsfólk í starfi. Þar má nefna fræðslu á sviði markmiðasetningar, samskipta, leiðtogaþjálfunar, stjórnunar, framkomu, sölu og þjónustu.

Engar breytingar hafa verið gerðar á úthlutunarreglum sjóðsins að öðru leyti en því að upphæð hagnýtra fræðslustyrkja, áður tómstundastyrkja, hækkar úr 30.000 krónum í 50.000 krónur. 

Nám sem fram fer erlendis verður ekki styrkt. 

Nýju reglurnar taka gildi 1. júní 2026 og verða sem hér segir:

Félagsmaður í Eflingu, Verkalýðsfélaginu Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis, sem unnið hefur og greitt félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 24 mánuðum á rétt á styrk vegna starfsmenntunnar:

Starfsmenntun

Nám sem fram fer hér á landi er styrkt sem starfsmennt, óháð starfi, samanber eftirfarandi:

  1. Nám til eininga og nám, próf og efniskostnaður sem veitir eða viðheldur auknum réttindum til starfa, á framhalds- og háskólastigi og hjá viðurkenndum fræðsluaðilum
  2. Skólagjöld í framhaldsskóla að undanskyldum gjöldum sem teljast valfrjáls, s.s. skóla-og nemendafélagsgjöld.
  3. Nám sem fellur undir löggildar iðngreinar.
  4. Öku- og vinnuvélanám til réttinda eða endurnýjunar réttinda, þ.m.t. almennt ökunám og ökutímar.
  5. Prófa- og skírteinisgjöld sem órjúfanlegur hluti af af námi / námslokum.
  6. Tölvunám.
  7. Tungumálanám hjá samþykktum fræðsluaðilum.
  8. Raunfærnimat, áhugasviðsgreiningar og starfstengd markþjálfun að hámarki 12 tímar innan almanaksárs.

Nám sem fram fer erlendis er ekki styrkhæft.

Hagnýtir fræðslustyrkir (hámarksstyrkur 50.000,- kr. á ári)

Nám, námskeið og ráðstefnur sem fram fara hér á landi og eru til þess fallin að styrkja félagsfólk í starfi, s.s. markmiðasetning, samskipti, leiðtogaþjálfun, stjórnun, framkoma, sala og þjónusta.

Úthlutunarreglur

Við ákvörðun upphæðar styrkja er miðað við greidd félagsgjöld síðustu 12 mánaða. 

Félagsgjald af lágmarkslaunum í 100% starfi gefur fulla styrkupphæð en þó aldrei meira en 90% af reikningi. 

Félagsmaður sem hverfur frá vinnu heldur áunnum réttindum sínum til styrks, sjá hér 

Foreldrar í fæðingar- eða foreldraorlofi geta nýtt sér áunnin rétt ef þau velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á orlofi stendur.

Félagsmenn í atvinnuleit halda áunnum rétti sínum eins og hann var við starfslok ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld af atvinnuleysisbótum.

Félagsmenn sem ekki hafa íslensku sem móðurmál geta sótt um endurgreiðslu vegna íslenskukennslu eftir að hafa greitt til félagsins í 1 mánuði, sjá hér

Áunnin réttindi félagsmanna innan Starfsafls og Landsmenntar eða SVS  haldast óbreytt þrátt fyrir flutning á milli sjóða, sjá hér.

Upphæðir endurgreiðslu

Hámarksgreiðsla fyrir almennt nám og og hagnýta fræðslustyki 180.000 kr.

Námskeið sem falla undir hagnýta fræðslustyrki  eru styrkt að hámarki kr. 50.000,- á ári.

Aldrei er greitt meira en 90% af kostnaði/ reikning.

Uppsafnaður réttur:

Félagsmenn sem ekki hafa nýtt rétt sinn í tvö ár geta fengið allt að 360.000 kr. í styrk fyrir eitt samfellt nám eða námskeið

Félagsmenn sem ekki hafa nýtt rétt sinn í þrjú ár geta fengið allt að 540.000 kr. í styrk fyrir eitt samfellt nám eða námskeið

Uppsafnaður réttur skerðist ekki hafi félagsmaður fengið styrk undir kr. 50.000 á tíma uppsöfnunar. Sá styrkur kæmi þó til frádráttar. 

Uppsafnaður réttur nær ekki til íslenskunáms. 

Sameiginlegur styrkur félagsmanns og fyrirtækis

Félagsmaður og fyrirtæki geta sótt sameiginlega um styrk vegna starfstengdrar fræðslu, sjá nánar hér

Svona sækir þú um

Sótt er um á mínum síðum hjá hlutaðeigandi stéttafélagi. Hjá félögunum er tekið við umsóknum til og með 20. hvers mánaðar og greitt er fyrsta virka dag í mánuði inn á bankareikning viðkomandi.  Hjá Eflingu er greitt út tvisvar í mánuði og því eru umsóknir sem berast á milli 21. og 31. hvers mánaðar greiddar út  þann 10. næsta mánaðar. Með útfyllingu umsóknar samþykkir umsækjandi vinnslu persónuupplýsinga.

Með umsókn skal skila

Frumriti reiknings sem er á nafni félagsmanns þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing, nafn og kennitala fræðsluaðila og staðfestingu á greiðslu úr heimabanka.

Misnotkun á fræðslusjóði og viðurlög

Umsækjandi sem reynist hafa gefið rangar eða villandi upplýsingar og eða notar fölsuð gögn við styrkumsókn, missir rétt sinn til styrks í 36 mánuði. Hafi umsækjandi fengið greidda styrkupphæð á grundvelli falsaðra og eða rangra gagna, er heimilt að krefja viðkomandi um endurgreiðslu á heildarupphæð styrks auk dráttarvaxta. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að kæra til lögreglu brot af þessu tagi.

Ef þú ert ekki viss um hvaða rétt þú átt þá er einfalt að hafa samband við þitt stéttafélag og fá þær upplýsingar.