Nám í fegrunarfræðum verður ekki styrkt eftir 1. júní 2026 og fellur þá reglan alfarið úr gildi. Umsóknir sem berast eftir 1. júní 2026 hljóta ekki samþykki sjóðsins og verður hafnað.
- Nám sem tekið er á Íslandi
Nám í hverskonar fegrunarfræðum sem tekið er hérlendis og telst ekki til löggildra iðngreina þarf að falla að viðmiðum sjóðsins um starfstengt nám og vera tekið hjá skólum eða snyrtistofum með starfsleyfi til að nemendur geti sótt um starfsmenntastyrk vegna námsins.
Vörupakkar og annað námsefni sem innifalið er í námskeiðsgjaldi, er ekki styrkt. Því er aðeins tekið við reikningum sem sýna sundurliðun á kostnaði.
Sé námið tekið hjá skóla eða snyrtistofu sem ekki er með starfsleyfi geta nemendur aðeins sótt um lífsleiknistyrk.
- Nám sem kennt er erlendis
Allt nám í fegrunarfræðum sem kennt er erlendis er ekki styrkt sem starfsmennt en nemendur geta sótt um lífsleiknistyrk vegna námsins.
- Skilgreiningar á fegrunarfræðum
Hér er notast við orðið fegrunarfræði þar sem orðið snyrtifræði nær yfir löggilda iðngrein. Þessi regla nær yfir allt annað nám sem telst til fegrunarfræða en hefur ekki hlotið löggildingu hér á landi, samanber eftirfarandi upptalningu:
- Förðun
- Naglalist, þ.m.t. ásetning gervinagla
- Augnaháraásetningar, augnaháralengingar
- Varanleg förðun á augabrúnir
Athugið að listann er mögulega ekki tæmandi.
Skólar sem kenna fegrunarfræði þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði svo það nám sem þeir bjóða sé styrkt sem starfsnám
- Hafa starfsleyfi og texta sem tiltekur það sýnilegan á vefsíðu og geta framvísað skírteini sé þess óskað.
- Hafa alla reikninga sundurliðaða þar sem skýrt kemur fram kostnaður vegna náms og varnings.
- Uppfylla skilyrði sjóðsins um starfsnám,
- Veita nemanda diplómu / viðurkenningarskjal í lok náms.
Hægt er að sækja um starfsmenntastyrk vegna náms hjá eftirfarandi fræðsluaðilum:
- Reykjavík Makeup School.
- Glam
- Make up studíó Hörpu Kára
- Deja Vu Nails Salon & Academy
- Lilly nails Iceland
- Magnetic
- Shimmer
- Crytal nails / Luxa
- Amber Lashes
Skólar sem uppfylla skilyrði en eru ekki á listanum hér að ofan geta haft samband við skrifstofu Starfsafls.