Nýjar reglur um starfsmenntastyrki einstaklinga tóku gildi 1. júní síðastliðinn. Því miður urðu mistök við uppfærslu á þeim reglum á vefsíðu Starfsafls.
Í texta sem tekur til uppsöfnunar sagði að uppsöfnun næði ekki til íslenskunáms. Hið rétta er að uppsöfnun nær ekki til alls tungumálanáms.
Starfsafl biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem það kann að hafa valdið.
Hér má sjá frétt um fyrrgreindar breytingar
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
