Stjórn Starfsafls hefur lokið heildarendurskoðun á reglum sjóðsins vegna einstaklingsstyrkja. Um er að ræða heildstætt framhald af hækkun styrkja sem tók gildi um siðustu áramót.
Nýjar reglur taka gildi 1. júní og fela í sér umfangsmiklar breytingar.
Markmið breytinganna er að skýra betur hvað telst til starfsmenntunar og hvað fellur utan þess ramma auk þess að tryggja að styrkir nýtist sem best til eflingar starfstengdrar færni og hæfni félagsfólks á vinnumarkaði.
Styrhæf starfsmenntun mun hér eftir eingöngu taka til náms sem fer fram hér á landi hjá viðurkenndum fræðsluaðilum. Undantekning frá þeirri reglu verður tungumálanám sem áfram verður styrkt, fari það fram hjá viðurkenndum fræðsluaðilum eða öðrum aðilum sem samþykktir eru af starfsmenntasjóðum. Hámarksstyrkur vegna íslenskunáms verður 180.000,- á ári.
Með breytingunum falla einnig tómstundastyrkir niður og í þeirra stað koma hagnýtir fræðslustyrkir.
Hagnýtir fræðslustyrkir verða veittir vegna náms, námskeiða og ráðstefna sem fara fram hér á landi og eru til þess fallin að efla félagsfólk í starfi. Þar má nefna fræðslu á sviði markmiðasetningar, samskipta, leiðtogaþjálfunar, stjórnunar, framkomu, sölu og þjónustu. Ekki verður gerð krafa um viðurkenningu fræðsluaðila.
Engar breytingar hafa verið gerðar á úthlutunarreglum sjóðsins að öðru leyti en því að upphæð hagnýtra fræðslustyrkja, áður tómstundastyrkja, hækkar úr 30.000 krónum í 50.000 krónur.
Nám sem fram fer erlendis verður ekki styrkt en síðustu árin hefur orðið sífellt meira krefjandi að fylgjast með og meta hvaða fræðsluaðilar erlendis uppfylla þau skilyrði sem gerð eru til viðurkenndra fræðsluaðila. Með hliðsjón af því hefur verið ákveðið að hætta að veita styrki vegna náms sem fram fer erlendis. Jafnframt er litið til þess að hér á landi er öflugt og fjölbreytt framboð náms og fræðslu sem mætir þörfum félagsfólks með góðum hætti.
Hér má kynna sér nánar þær reglur sem taka gildi 1. júní 2026.