Netnámskeið styrkt fyrir einstaklinga
Við hjá Starfsafli og þeim stéttafélögum sem að sjóðnum standa; Eflingu stéttarfélagi, Verkalýðsfélaginu Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis, viljum minna á að einstaklingar geta sótt um styrk vegna netnámskeiða (stafrænnar fræðslu).
Ýmis námskeið eru í boði en nú sem fyrr er mikilvægt að mæta þekkingu sem vantar og eða bæta færni og þekkingu sem fyrir er.
Námskeiðin þurfa að vera starfstengd og falla að þeim skilgreiningum sem sjóðurinn styðst við vegna námskeiða, sjá hér
Reglur Starfsafls um styrki til einstaklinga má sjá hér
Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Ekki hika við að senda okkur línu á [email protected], ef frekari upplýsinga er þörf
Myndin er eftir Christina @ wocintechchat.com fengin af síðunni Unsplash