Kröfur vegna íslenskunáms

Að gefnu tilefni tók gildi nýr rammi* um styrkhæfni vegna íslenskunáms  um áramót, þar sem skerpt var á öllum viðmiðum og kröfum til fræðsluaðila og leiðbeinanda. Sannarlega hefur verið unnið eftir ákveðnum viðmiðum en samræmd gagnsæ viðmið hafði vantað.  Í góðu samstarfi sjóða og annarra hlutaðeigandi var unnið að þeim ramma sem lesa má hér fyrir neðan. 

Styrkhæfni í íslenskukennslu

Á við um allt nám, námskeið og einkakennslu. Aðgangur að öppum í íslensku eru einig styrkhæf falli þau að viðmiðum sjóðsins um starfstengt nám.

Viðmið sjóða um hæfi leiðbeinanda

Leiðbeinandi íslenskunámskeiða, íslenskunáms eða einkakennslu sem starfar annarsstaðar en hjá viðurkenndum fræðsluaðila samþykktum af Mennta- og barnamálaráðuneytinu eða Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu,  verður að búa yfir neðangreindum hæfnikröfum og reynslu svo þjónusta viðkomandi teljist styrkhæf af starfsmenntasjóðum

Aðrar hæfnikröfur:
• Marktæk þekking á kennslu tungumála
• Reynsla af kennslu frá viðurkenndum fræðsluaðila
• Lokið námi á háskólastigi
• Fagleg vinnubrögð og metnaður til að skila góðri vinnu

Tilgreindar hæfnikröfur leiðbeinanda eiga einnig við um annað tungumálanám

Umsókn er hafnað ef ofangreindar kröfur um viðmið, hæfi og hæfni eru ekki fyrir hendi. 

Um Starfsafl:

Öll fyrirtæki sem greiða iðgjöld af starfsfólki til Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, geta sótt um í sjóðinn.  Sótt er um á www.attin.is

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected]  Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.