26.3 milljónir greiddar út í sjöunda mánuði ársins

Fjöldi fyrirtækja nýtir sumarmánuðina til að taka saman gögn og senda inn umsóknir vegna náms og  námskeiða sem starfsfólk hefur sótt það sem af er ári.

Þá eru  fyrirtæki sem senda inn umsóknir vegna námskeiða sem sumarstarfsfólk sækir en það er að aldrei of oft undirstrikað mikilvægi þess að fjárfesta í því starfsfólki sem kemur inn á vinnumarkaðinn rétt yfir sumarmánuðina.  Oftar en ekki er um að ræða ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og því mikilvægt að það geti bætt við sig reynslu og hæfni og jafnvel öðlast réttindi sem það getur nýtt sér í framtíðarstörfum.  

Þá eru  fyrirtæki sem senda inn umsóknir vegna námskeiða sem sumarstarfsfólk sækir en það er að aldrei of oft undirstrikað mikilvægi þess að fjárfesta í því starfsfólki sem kemur inn á vinnumarkaðinn rétt yfir sumarmánuðina.  Oftar en ekki er um að ræða ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og því mikilvægt að það geti bætt við sig reynslu og hæfni og jafnvel öðlast réttindi sem það getur nýtt sér í framtíðarstörfum.  

Þá eru ótalin önnur námskeið sem fyrirtæki greiða fyrir sitt sumarstarfsfólk og eru góður grunnur fyrir öll framtíðarstörf,  Að sjálfsögðu er síðan hægt að sækja um styrk sem felur í sér endurgreiðslu á kostnaði til Starfsafls og nýta þannig sinn rétt hjá sjóðnum, sem myndast sjálfkrafa um leið og launatengd gjöld hafa verið greidd.

Styrkir til fyrirtækja og einstaklinga

Samanlögð styrkfjárhæð  til einstaklinga og fyrirtækja í júlí var um 26.3 milljónir króna sem er aðeins hærri fjárhæð en var greidd í styrki á sama tíma og fyrir ári síðan.  Sé litið til fyrstu 6 mánaða ársins þá er um 6% aukningu að ræða á milli ára í heildarfjárhæð greiddra einstaklings- og fyrirtækjastyrkja.

Sé litið til fyrstu 6 mánaða ársins þá er um 6% aukningu að ræða á milli ára í heildarfjárhæð greiddra einstaklings- og fyrirtækjastyrkja.

Styrkir til fyrirtækja

Í júlí bárust 19 umsóknir frá 14 fyrirtækjum.  Tvær umsóknir bíða afgreiðslu, önnur þar sem tilskylin gögn vantar og hin er vegna Fræðslustjóra að láni og ekki mögulegt að hefja ferlið vegna sumarleyfa.  Sú vinna fer þó í gang um miðjan ágúst. 

Þá var ein umsókn vegna meiraprófs og sameiginlegur styrkur  fyrirtækis og félagsmanns, en þá getur fyrirtæki sótt um til Starfsafls og fengið hámarksstyrks vegna einstaklingsnáms starfsmanns og félagsmaðurinn sótt um einstaklingsstyrk og nýtt þann rétt sem hefur áunnist þar. Um sama sjóð er að ræða, en Starfsafl sér um alla afgreiðslu og þjónustu við fyrirtæki en stéttafélögin sjá um afgreiðslu til félagsmanna í umboði Starfsafls. Hér má lesa nánar um sameiginlegan styrk fyrirtækis og félagsmanns.  Þegar þessi leið er farin þá getur samanlagður styrkur orðið að hámarki 690.000,- en þó aldrei meira en 90% af reikningi. 

Aðrar umsóknir voru vegna eftirtalinna námskeiða:

ADR námskeið
Endurmenntun atvinnubílstjóra
Erfiðir viðskiptavinir
Fræðslusafn Akademías
Frumnámskeið
Fyrirtækjamenning
Íslenska
Leiðtogaþjálfun
Meirapróf
Öryggisnámskeið
Skyndihjálp
Vinnuvélanámkeið

Styrkfjárhæðir eftir félagsaðild; 

Efling kr. 17,265,860,  

VSFK kr. 3,128,972,-  

Hlíf kr. 2,463,782,-

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér