 Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og Samtök ferðaþjónustunnar boðuðu til Menntamorguns ferðaþjónustunnar miðvikudaginn 25. maí síðastliðinn.  Á fundinum var sjónum beint að þjálfun og fræðslu starfsfólks og þeirri spurningu svarað hvernig hún skapar ávinning fyrir fyrirtæki.

Framkvæmdastjóri Starfsafls, Lísbet Einarsdóttir, var meðal mælenda á dagskrá fyrir hönd Áttarinnar, vefgáttar sjóða, og flutti hún erindi undir yfirskriftinni, Fjármagn til fyrirtækja eitthvað fyrir þitt fyrirtæki. Í sínu erindi kynnti hún vefgátt sjóða, þá sjóði og setur sem standa að vefgáttinni og mögulega styrki, svo fátt eitt sé talið.
Fundurinn var í beinu streymi og hér má nálgst upptöku af fundinum
Hér má nálgast glærur Lísbetar frá fundinum
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Fyrirspurnum varðandi aðra sjóði en Starfsafl skal beina til hlutaðeigandi sjóða eða með tölvupósti á [email protected]