Afgreiðsla umsókna fyrir áramót

Við viljum vekja athygli á því að umsóknir fyrirtækja þurfa að berast fyrir 11. desember ef þær eiga að fá afgreiðslu fyrir áramót. Ekki ert tryggt að umsókn sem berst eftir þann tíma verði afgreidd fyrr en á nýju ári.  

Því fyrr sem umsókn berst, því betra !

Við viljum minna á að fyrirtæki geta sótt um styrk og lagt fram reikning sem er allt að ársgamall. Skilyrði er að sá starfsmaður sem sótt er um styrk vegna hafi verið starfandi hjá fyrirtækinu þegar námskeið fór fram, nafn hans og kennitala komi fram á reikningi þar sem fyrirtækið er tilgreindur greiðandi og  iðgjöld hafi borist viðkomandi stéttafélagi.

Mikilvægt er að vanda umsóknir, setja gögn inn með þeim hætti að auðvelt sé að lesa þau saman og gæta þess að öll tilskylin gögn fylgi umsókn.

Mikilvægt er að vanda umsóknir, setja gögn inn með þeim hætti að auðvelt sé að lesa þau saman og gæta þess að öll tilskylin gögn fylgi umsókn.

Þau gögn sem þarf með umsókn  eru án undantekninga samanber eftirfarandi:

1. Upplýsingar um fræðsluna (stutta samantekt á efnisþáttum eða lýsingu á nám, slóð á vefsíðu).

2. Reikningur  á kennitölu fyrirtækis, þar sem sundurliðun kostnaðarþátta er skýr. Athugið undantekningu vegna sameiginlegs styrks félagsmanns og fyrirtækis. Reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða.  

3. Staðfesting á greiðslu, þ.e. bankakvittun úr íslenskum banka sem staðfestir greiðslu í íslenskum krónum.

4. Listi  yfir þátttakendur, nöfn, kennitölur og stéttarfélagsaðild (gott að hafa í excel skjali)

5. Yfirlit yfir skil á starfsmenntaiðgjaldi  vegna þess starfsfólks sem telst til félagsmanna Eflingar, sjá nánar hér

Öll fyrirtæki sem greiða iðgjöld af starfsfólki til Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, geta sótt um í sjóðinn.  Sótt er um á www.attin.is

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected]  Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Sjá hér fréttapóst Starfsafls sem sendur var út vegna þessa 

Myndin með fréttinni er fengin hér