Febrúar er sá mánuður sem iðulega er örlítið rólegri en aðrir mánuður ársins þegar kemur að innsendum umsóknum og afgreiðslu þeirra. Skýringin er væntanlega sú að mörg fyrirtæki leggja inn umsóknir undir lok árs, hreinsa þá upp borðið og fræðslustarf víða rétt að komast á fullt skrið á nýju ári. Engu að síður var í febrúar samanlögð greidd styrkfjárhæð til fyrirtækja og einstaklinga 45 milljónir króna.
Febrúar er sá mánuður sem iðulega er örlítið rólegri en aðrir mánuður ársins þegar kemur að innsendum umsóknum og afgreiðslu þeirra. Skýringin er væntanlega sú að mörg fyrirtæki leggja inn umsóknir undir lok árs, hreinsa þá upp borðið og fræðslustarf víða rétt að komast á fullt skrið á nýju ári.
Styrkir til fyrirtækja
Í febrúar bárust 26 umsókn frá 15 fyrirtækjum, Heildarfjárhæð greiddra styrkja var 3.6 milljónir króna og á bak við þá tölu 270 félagsmenn.
Þremur umsóknum var hafnað, þar af einni umsókn þar sem reikningurinn var á kennitölu starfsmanns. Það ber því að undirstrika að þegar fyrirtæki sækja um vegna starfsfólks þá er skilyrt að reikningur sé á kennitölu fyrirtækis, ekki starfsmanns. Það sama á við um staðfestingu á greiðslu úr heimabanka, hún verður einnig að vera á kennitölu fyrirtækis. Athugið, að þetta á þó ekki við um þegar sótt er um sameiginlegan styrk, sjá nánar hér
Þau námskeið sem sótt voru ansi fjölbreytt, til að mynda námskeið um greftrunarsiði fyrir starfsfólk kirkjugarðanna og gervigreindarnámskeið, en hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir þau námskeið sem sótt var um styrk fyrir:
Vöruhúsatækni
Greftrunarsiðir
Brunavarnir
Íslenska
EKKO
Vinnuvélanámskeið
Hreinlætisnámskeið
Íslenska
Skyndihjálp
Gervigreindarnámskeið
Vinnuvélanámskeið
Endurmenntun atv.
Starfænt fræðslusafn
Leiðtogaþjálfun
Frumnámskeið
Fjármálanámskeið
Styrkir til einstaklinga
Samanlögð styrkfjárhæð í febrúar til einstaklinga var rétt undir 42 milljóum króna og skiptist á milli félaganna samanber eftirfarandi:
Efling kr. 29.748.479,-
VSFK kr. 9.186.421.-,
Hlíf kr. 2.455.497,-
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Myndin er fengin hér