Nú þegar þegar árið er hálfnað er tímabært að líta til baka og skoða tölur, fjölda umsókna og fjárhæðir sem veittar hafa verið í styrki til fyrirtækja og einstaklinga.
Það sem af er ári hefur Starfsafl afgreitt 176 umsóknir og greiddar hafa verið tæplega 32 milljónir króna í styrki til fyrirtækja vegna starfstengdrar fræðslu. Á bak við þær tölur eru 2772 einstaklingar. Þar er hverri krónu vel varið og fyrirtæki sem fjárfestir í sínu starfsfólki með því að bjóða upp á starfstengda fræðslu og hvetja til starfsþróunar, styrkir sína innviði og uppsker ríkulega.
Það sem af er ári hefur Starfsafl afgreitt 176 umsóknir og greiddar hafa verið tæplega 32 milljónir króna í styrki til fyrirtækja vegna starfstengdrar fræðslu.
Sú heildarfjárhæð sem greidd hefur verið það sem af er þessu ári er talsvert lægri en greidd var fyrir sama tímabil á síðasta ári. Ástæðan þar að baki er reglubreyting sem átti sér stað um síðustu áramót um lækkað styrkhlutfall vegna upptekinnar fræðslu, fræðslusafna og fræðsluappa. Þessi lækkun er þó í samræmi við áætlanir og hluti af þeirri vegferð sjóðsins að styðja enn frekar við fræðslu sem fram fer hjá viðurkenndum fræðsluaðilum, til eininga og starfstengdra réttinda, samanber hækkun styrkfjárhæða til einstaklinga sem tók gildi um síðustu áramót og efnislegar reglubreytingar vegna einstaklingsstyrkja sem tóku gildi 1. júní síðastliðinn, sjá hér
Fjölmörg námskeið sem fyrirtæki sækja um styrk vegna tengjast beint lögbundnum skyldum atvinnurekenda. Þar má nefna fræðslu um skyndihjálp, brunavarnir, rýmingu, vinnuvernd og matvælaöryggi. Í matvælafyrirtækjum bera stjórnendur samkvæmt lögum ábyrgð á því að starfsfólk hafi nauðsynlega þekkingu og fái fræðslu um örugga meðferð matvæla og innra eftirlit. Þá er sótt um vegna námskeiða sem tengjast réttindum á vinnuvélar, samskipta, leiðtoga- og stjórnunarfærni, tölvunám og íslensku svo fátt eitt sé talið.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir þau námskeið sem fyrirtæki greiddu fyrir sitt starfsfólk það sem af er þessu ári, en gagnlegt getur verið að skoða hann til að sjá dæmi um þau námskeið sem eru styrkt hjá Starfsafli.
| Öryggi, vinnuvernd og lögbundin hæfni | Brunavarnir,Fallvarnir, Flugverndarnámskeið, Líkamsbeiting, Ógnandi hegðun, Öryggisnámskeið, Öryggisnámskeið vegna súrefnistanka, Skyndihjálp, SSG öryggisnámskeið, Vinna í hæð og lokuðu rými, Vinnuverndarnámskeið |
| Vinnuvélar, ökuréttindi og starfsréttindi | ADR (flutninguar á hættulegum farmi), Akstursleyfi, Aukin ökuréttindi, Endurmenntun atvinnubílstjóra, Frumnámskeið, Endurmenntun atvinnubílstjóra, Lyftarapróf, Meirapróf, Vinnuvélanámskeið |
| Stjórnun, leiðtogahæfni og mannauður | Að stjórna jafningjum, Breytingastjórnun, Leiðtogaþjálfun, Liðsheild, Stjórnendaþjálfun, Verkstjóranámskeið |
| Samskipti, þjónusta og persónuleg hæfni | EKKO (einelti og áreitni á vinnustað), Erfiðir kúnnar og áreiti, Samskipti, Samskipti milli ólíkra kynslóða, Sjálfsefling, Starfslokanámskeið, Þjónustuþjálfun, Tímastjórnun |
| Gæðastjórnun og umbótastarf | Gæðastjórnun, Innri úttektir stjórnkerfa, Hreinlæti |
| Stafræn hæfni og upplýsingatækni | AI vinnustofa, Gervigreindarnámskeið, Teams, Power BI |
| Tungumál | Íslenska |
| Heilsa og vellíðan | Fyrirlestur um heilsu, Fyrirlestur um svefn |
| Faggreinar og sérhæfð starfsþekking | Fiskeldistækni, Fjármál, Greftrunarsiðir, UT Messan, Vöruhúsatækni, Vínámskeið, Fræðsla um sólmyrkvann |
| Upptekin fræðsla, fræðsluöpp og fræðslusöfn | Vinnustaðaskóli Akademías, Fræðsluumhverfi (kerfi til að setja inn fræðslu), Gerð fræðsluefnis |
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.