Uppsafnaður réttur nær ekki til tungumálanáms

Nýjar reglur um starfsmenntastyrki einstaklinga tóku gildi 1. júní síðastliðinn. Því miður urðu  mistök við uppfærslu á þeim reglum á vefsíðu Starfsafls. 

Í  texta sem tekur til uppsöfnunar sagði að uppsöfnun næði ekki til íslenskunáms. Hið rétta er að uppsöfnun nær ekki til alls tungumálanáms.  

Starfsafl biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem það kann að hafa valdið. 

Hér má sjá frétt um fyrrgreindar breytingar 

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected]  Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.