Skráning er hafin á vorfund Starfsafls sem haldinn verður fimmtudaginn 7. maí nk á Vox Club Hilton Reykjavík Nordica (gengið inn að framanverðu, til hliðar við aðalinngang).
Fundurinn hefst stundvíslega kl. 13:30 og er að fullu lokið kl. 16:00. Húsið opnar kl. 13:00.
Að þessu sinni ætlum við aðeins að skoða hvað þarf til að vera í vinningsliðinu ? Hvað þarf til að ná hámarksárangri í fræðslu og starfsþróunarmálum ? Hvert er leyndarmálið ?
Á dagskrá eru erindi þar sem fjallað verður um fræðslu og starfsþróunarmál í fyrirtækjum og lagt upp úr að leita svara við fyrrgreindum spurningum.
Dagskrá vorfundar
Ávarp formanns. Jóhann Kristjánsson, formaður stjórnar Starfafls, býður gesti velkomna.
Mannauður sem hluti virðiskeðjunnar. Lísbet Einarsdóttir, Framkvæmdastjóri Starfsafls.
Meistarataktar. Helga Fjóla Sæmundsdóttir, Framkvæmdastjóri mannauðssviðs, Hornsteinn ehf.
Frá skyldu til frumkvæðis. Jónína Magnússdóttir, Mannauðssstjóri Blue Car Rental.
Fræðsla, framleiðni og framtíðin. Herdís Pála Pálsdóttir, eigandi og Framkvæmdastjóri Dokkunnar.
Tengslamyndun yfir góðum veitingum. Gestir eru hvatttir til að staldra við að erindum loknum fram að fundarslitum, njóta góðra veitinga, taka samtalið og klárlega stækka tengslanetið.
Vorfundi slitið
Allir áhugasamir eru sannarlega velkomnir en skráning er nauðsynleg.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.