Hæfnigreining starfs dyravarða
Á fimmtudag í síðustu viku var fyrsti fundur stýrihóps vegna vinnu við hæfnigreiningu starfs dyravarða. Verkefnið er að fullu fjármagnað af Starfsafli og Eflingu stéttafélagi en Mímir símenntun sér um framkvæmd.
Þá er ómetanlegt framlag þeirra sem taka þátt í vinnu stýrihóps en þar situr m.a. fulltrúir lögreglu og fulltrúar skemmtistaða auk þess sem starfandi dyraverðir munu taka þátt í greiningarvinnunni sem unnin verður á næstu vikum.
Hæfnigreining starfa felst í að kortleggja og skilgreina þá hæfni sem mikilvægt er að starfsmaður búi yfir til að árangur náist í starfi. Þess utan geta hæfnigreiningar starfa nýst á margvíslegan máta, s.s:
Grunnur fyrir gerð námsefnis – og námsbrauta.
Við skipulag þjálfunar og gerð fræðsluáætlana.
Við gerð starfsþróunarstefnu og starfsþróunaráætlana.
Við starfsmannaval og ráðningar.
Við gerð starfslýsinga.
Sem viðmið um frammistöðu í starfi sem nota má í frammistöðumati.
Við hæfnigreiningarnar er notuð aðferð samkvæmt viðurkenndri aðferðafræði frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins sem byggir á efni frá kanadíska ráðgjafafyrirtækinu Human Resource System Group.
Hæfnigreining starfa dyravarða er fyrsta af sex hæfnigreiningum sem samið hefur verið um við Mímir Símenntun. Sjá nánar hér