Viðurkenndir og samþykktir fræðsluaðilar vegna tungumálanáms

Fjöldi fræðsluaðila, ráðgjafa og annarra sérfræðinga starfar sjálfstætt við fræðslu og þjálfun; innan fyrirtækja, við markþjálfun eða kennslu til einstaklinga, til dæmis í tungumálum. Þessir aðilar eru oft ekki tengdir viðurkenndum fræðsluaðilum eða formlegum skólum, en gegna engu að síður afar mikilvægu hlutverki í símenntun og miðlun þekkingar.

Við hjá Starfsafli fögnum því þegar slíkt fagfólk deilir sérþekkingu sinni og tekur virkan þátt í að efla hæfni einstaklinga og starfsfólk fyrirtækja. Í mörgum tilfellum er sú fræðsla sem þessir aðilar veita styrkhæf hjá sjóðnum, hvort sem hún fer fram innan fyrirtækja eða beinist að einstaklingum.

Það er þó afar mikilvægt að kynna sér þær reglur og viðmið sem gilda, bæði varðandi uppsetningu og innihald námskeiða, hæfni, þekkingu og reynslu fræðsluaðila, sem og gerð reikninga og skilyrði styrkhæfni, svo fátt eitt sé nefnt, til þess að ferlið gangi hnökralaust fyrir sig fyrir alla aðila, hvort sem um er að ræða einstaklinga eða fyrirtæki.

Viðurkenndir og samþykktir fræðsluaðilar vegna tungumálanáms

Aðeins er hægt að sækja um starfsmenntastyrk vegna tungumálanáms sem fram fer hjá viðurkenndum fræðsluaðilum, sjá lista á vef stjórnarráðsins  og hjá fræðsluaðilum sem hafa verið samþykktir sérstaklega af Starfsafli. 

Samþykktir fræðsluaðilar.

Gert er ráð fyrir að fræðsluaðilar búi yfir viðeigandi menntun, hæfni og reynslu í samræmi við viðfangsefni fræðslu. Þeir skulu geta sýnt fram á faglega þekkingu og færni með viðeigandi gögnum, svo sem upplýsingum um menntun, starfsreynslu eða öðrum hæfnisvottunum, sé þess óskað.  

Upplýsingar um leiðbeinendur skulu vera skýrar og aðgengilegar og koma fram í umsóknum til sjóðsins

Við mat á fræðsluaðilum er farið yfir tilgreind gögn til að tryggja að þeir uppfylli almenn hæfnisviðmið sjóðsins. Samþykki felur þó ekki í sér gæðamat, vottun eða ábyrgð af hálfu sjóðsins á innihaldi, framkvæmd eða árangri náms eða þjónustu. Sjóðurinn sinnir ekki reglubundnu eftirliti með starfsemi fræðsluaðila.

Hér má nálgast lista yfir þá fræðsluaðila sem eru viðurkenndir af starfsmenntasjóðunum.

Myndin með fréttinni er fengin hér