Í lok febrúar á þessu ári undirritaði Starfsafl hundraðasta samninginn vegna Fræðslustjóra að láni, rúmlega 10 árum eftir að fyrsti samningurinn var undirritaður.
Samningurinn var við fyrirtækið Ístak og ráðgjafi var Ragnar Matthíasson hjá RM ráðgjöf, en hann hefur komið að fjölda slíkra verkefna við góðan orðstír. Verkefninu lauk á dögunum og afurðin er glæsileg fræðsluáætlun sem nær til allra starfsmanna fyrirtækisins.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að fyrsti samningurinn var undirritaður til þess hundraðasta, en verkefnið hefur verið í sífelldri þróun og tekið breytingum í takt við þarfir atvinnulífsins og fyrirtækjanna. Engu að síður eru meginmarkmið þau sömu, að lána ráðgjafa inn til fyrirtækja, fyrirtækjunum að kostnaðarlausu að undanskildum þeim tíma sem felst í framlögðum tíma starfsfólks sem tekur þátt hverju sinni. Þá er í flestum tilfellum um samstarfsverkefni Starfsafls og annarra sjóða að ræða og fer þá eftir félagsaðild starfsmanna, hvaða sjóðir koma að hverju sinni.
Hlutverk ráðgjafans er að greina með markvissum hætti fræðsluþarfir fyrirtækisins, samhliða stefnu þess, og draga upp fræðsluáætlun sem tekur til allra starfsmannahópa innan fyrirtækisins. Það gerir hann með völdu starfsfólki og stjórnendum í rýnihópum.
Að því sögðu hefur það verið mikill fengur fyrir sjóðinn að hafa unnið með framúrskarandi ráðgjöfum, bæði sjálfstætt starfandi og ráðgjöfum innan símenntunarstöðvanna, sem búa yfir þekkingu og reynslu á þessu sviði. Verkfærið sem slíkt hefði aldrei náð að festa sig í sessi ef ekki væri fyrir þá og gott samstarf á milli allra hlutaðeigandi.
Fræðslustjóri að láni er góð leið fyrir fyrirtæki til að koma fræðslu- og starfsmenntamálum í farveg, fá aðra sýn á fræðslustefnu fyrirtækisins, velta við steinum og horfa til framtíðar.Þá er það ekki síst mikilvægt á tímum þar rætt er um fjórðu iðnbyltinguna, þar sem störf eru að taka miklum breytingum eða hverfa alveg og því enn mikilvægara en fyrr að fjárfesta í hæfni og þróun starfsmanna sinna.
Það sem af er ári hefur Starfsafl undirritað 9 samninga svo ljóst er að ekkert lát er á sókn fyrirtækja í verkefnið.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þau fyrirtæki sem fengið hafa Fræðslustjóra að láni frá upphafi til þess fyrirtækis sem undirritaði hundraðasta samninginn.
Straumhvarf hf. (Artic adventures) 
 Actavis ehf. 
 Airport Associates 
 Alcan 
 Allrahanda 
 Allt hreint ehf. 
 Askja 
 Avis bílaleiga 
 AÞ þrif 
 Bananar 
 Bandalag íslenskra farfugla 
 Bílabúð Benna 
 BM Vallá 
 Brúarveitingar 
 Bus Travel Iceland 
 DHL Hraðflutningar 
 Efling, stéttarfélag 
 Eimskip 
 Elding 
 Farfuglar 
 Ferskar Kjötvörur
 Félagsstofnun stúdenta 
 Firmex-Alex ehf 
 Flugfélag Íslands 
 Foðurblandan 
 FoodCo hf 
 Fosshótel 
 Gámaþjónustan 
 Grillhúsið 
 Gunnars majones 
 Hamborgarafabrikkan 
 Hótel Reykjavík centrum 
 Hótel Keflavík 
 Hótel Óðinsvé 
 Hreint 
 Icelandair Hotel Natura 
 Icelandair Hotels 
 Ikea 
 ISS Ísland 
 ÍAV 
 Íshestar 
 Ísl. Gámafélagið 
 Íslandshótel 
 Íslensk Ameríska 
 Íslenska gámafélagið 
 Ístak 
 Kaffi Duus 
 Kaffitár ehf 
 Katla/fræðslustjóri 
 Kex Hostel 
 KFC 
 Kjörís 
 Klasasamstarf fimm fyrirtækja í Hveragerði
 Kopar restaurant 
 Lagerdere 
 Langbest veitingar 
 LNS saga 
 Loftorka 
 Lystadún Marco 
 Lýsi hf. 
 Lækjarbrekka 
 Marel 
 Miðbæjarhótel 
 Miklatorg 
 Mjólkursamsalan 
 N1 
 Nesfiskur 
 Northen Light Inn 
 Nói Síríus 
 Olíudreifing 
 Olíuverslun Íslands 
 Pizza Pizza ehf. 
 Plastprent 
 Pústþjónustan BJB 
 Radisson Blu 1919 
 Rauði krossinn á Íslandi 
 RUV 
 Samskip 
 Securitas 
 Serrano Ísland ehf. 
 Síldarvinnslan 
 Skeljungur hf. 
 Skemmtigarðurinn Smáralind 
 Skólamatur ehf.
 Sólarræsting 
 Sólning ehf 
 Steypustöðin 
 Stjarnan 
 Stjörnugrís 
 Toppfiskur 
 Vífilfell 
 Ölgerðin 
 Öryggismiðstöðin 
 Össur hf. 
 1912 samstæðan 
 66°N