Undirritaður samningur um sex hæfnigreiningar
Í gær, þriðjudaginn 10. apríl 2018, undirrituðu Starfsafl og Efling stéttafélag samning við Mími símenntun um hæfnigreiningu sex starfa.
Frammistaða starfsfólks er grundvöllur árangurs og frammistaða byggist bæði á því að starfsfólk geti gert það sem ætlast er til og vilji gera það. Hæfnigreining starfa felst í að kortleggja og skilgreina þá hæfni sem mikilvægt er að starfsmaður búi yfir til að árangur náist í starfi. Þess utan geta hæfnigreiningar starfa nýst á margvíslegan máta, s.s:
- Grunnur fyrir gerð námsefnis – og námsbrauta.
- Við skipulag þjálfunar og gerð fræðsluáætlana.
- Við gerð starfsþróunarstefnu og starfsþróunaráætlana.
- Við starfsmannaval og ráðningar.
- Við gerð starfslýsinga.
- Sem viðmið um frammistöðu í starfi sem nota má í frammistöðumati.
Við hæfnigreiningarnar er notuð aðferð samkvæmt viðurkenndri aðferðafræði frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins sem byggir á efni frá kanadíska ráðgjafafyrirtækinu Human Resource System Group.
Þau störf sem um er að ræða eru sbr. eftirfarandi:
- Almenn störf og vaktstjórn á skyndibitastöðum ( 2. störf)
- Hópferðabílstjórar sem fara með vaktstjórn
- Öryggis- og dyraverðir (2 störf)
- Smur og dekkjaþjónusta
Verklok eru eigi síðar en 20. janúar 2019 og verða þá greiningarnar aðgengilegar öllum sem áhuga hafa til notkunar.
Myndin er fengin hér / Freepik