Árangur fyrirtækja ræðst sífellt meira af einu lykilatriði, fólkinu sem þar starfar. Tækni þróast hratt, verkefni verða flóknari og breytingar eru orðnar hluti af daglegum rekstri. Í slíku umhverfi dugar ekki lengur að horfa eingöngu til framleiðni eða ferla heldur þurfa fyrirtæki markvisst að styðja við starfsfólk sitt, efla samskipti og styrkja leiðtogahæfni innan vinnustaðarins.
Góð samskipti eru ekki „mjúkt mál“ heldur grunnforsenda heilbrigðs vinnuumhverfis og árangursríks rekstrar. Þar sem samskipti eru skýr, traust ríkir og starfsfólk upplifir stuðning, eykst bæði starfsánægja og árangur. Misskilningur minnkar, samvinna verður skilvirkari og starfsfólk er líklegra til að taka ábyrgð, sýna frumkvæði og vilja vaxa í starfi.
Góð samskipti eru ekki „mjúkt mál“ heldur grunnforsenda heilbrigðs vinnuumhverfis og árangursríks rekstrar. Þar sem samskipti eru skýr, traust ríkir og starfsfólk upplifir stuðning, eykst bæði starfsánægja og árangur. Misskilningur minnkar, samvinna verður skilvirkari og starfsfólk er líklegra til að taka ábyrgð, sýna frumkvæði og vilja vaxa í starfi.
Á sama tíma eru gerðar sífellt meiri kröfur til stjórnenda og leiðtoga. Leiðtogar nútímans þurfa ekki aðeins að stýra verkefnum heldur einnig að leiða fólk í gegnum breytingar, skapa sálrænt öryggi, byggja upp traust og styðja við vellíðan starfsfólks. Slík hæfni verður ekki til af sjálfu sér, hana þarf að rækta með markvissri fræðslu og þjálfun.
Fræðsla sem beinist að samskiptum, samstarfi, stjórnendafærni og leiðtogahæfni er því ekki kostnaður heldur fjárfesting. Fyrirtæki sem leggja áherslu á mannlega þáttinn standa sterkari gagnvart áskorunum framtíðarinnar. Þau eru betur í stakk búin til að halda í hæft starfsfólk, byggja upp jákvæða vinnustaðamenningu og skapa umhverfi þar sem fólk getur dafnað.
Mörg fyrirtæki vita þó ekki að hægt er að sækja um styrki fyrir slíkri fræðslu en námskeið sem styðja við starfsfólk, samskipti, liðsheild, stjórnendaþjálfun og leiðtogafærni, falla undir styrkhæfa fræðslu hjá Starfsafli. Með slíkri fræðslu geta fyrirtæki byggt enn frekar undir sinn mannauðinn. Það er nefnilega ekki tilviljun þegar vinnustaðir ná árangri til lengri tíma. Á bak við sterka menningu, góða þjónustu og öflugt starfsfólk liggur yfirleitt meðvituð ákvörðun um að fjárfesta í fólki.
Það er nefnilega ekki tilviljun þegar vinnustaðir ná árangri til lengri tíma. Á bak við sterka menningu, góða þjónustu og öflugt starfsfólk liggur yfirleitt meðvituð ákvörðun um að fjárfesta í fólki.
Fyrirtæki sem styðja starfsfólk sitt skapa ekki aðeins betri vinnustaði – þau byggja sterkari framtíð.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected]