Styrkloforð rúmlega 20 milljónir króna
Á fyrstu 5 mánuðum ársins 2017 hafa verið veitt styrkloforð fyrir rúmlega 20 milljónir kr. Þar af hafa tæplega 16 milljónir verið greiddar út til fyrirtækja.
Fjöldi umsókna á þessum fyrri hluta er töluverður, en alls hafa borist 168 umsóknir frá 65 fyrirtækjum. Örfáum umsóknum var hafnað og er ástæðan alla jafna þar að baki sú að enginn félagsmaður tilheyrir Starfsafli eða gögn hafa verið ófullnægjandi.
Þá hafa borist 16 umsóknir um samning vegna eigin fræðslu og þar af 12 undirritaðir. Vegna verkefnisins Fræðslustjóri að láni hafa borist 15 umsóknir á árinu og er vinna í gangi í fjórum verkefnum, þremur er lokið, hætt við eitt og þau sem eftir standa eru ekki farin af stað.
Dæmi um námskeið sem hafa verði styrkt eru eftirfarandi:
ADR
Aukin ökuréttindi
Brunanámskeið, s.s. brunakerfi á veitingahúsum
Brýninganámskeið
Dale Carnegie
EMR vettvangsliðar og endurmenntun EMR
Endurmenntun atvinnubílstjóra
Ensku námskeid
Excel námskeid
Fjölmenning
Framsögn og tjáning
Franklin Covey
Frumnámskeið
Fræðsla um einelti og kynferðislega áreitni.
Liðsheild
Gæðastjórnun
HACCP og HACCP 3 _ BRC
Heilsa og öryggi
Hugleiðslunámskeið
INSTA-800 staðall
Islensku námskeid, s.s. íslenska fyrir erlenda starfsmenn og íslenska fyrir stjórnendur.
Jafnvægi starfs og einkalífs
Leiðtoganámskeið
Liðsheildarnámskeið
Líkamsbeiting og vinnuvernd
Lyftaranámskeið
Markmiðasetning
Meðferð matvæla
Meirapróf
Menning og túlkaþjónusta
Menntastoðir
Merking vinnusvæða
Námskeið um BRC og öryggi
Outlook
Samfélagsmiðlar og sýnileiki í ferðaþjónustu
Samskiptanámskeið
Sjúkraflutningnámskeið EMT
Skyndihjálp
Starfsmannasamtöl
Stjórnendafræðsla
Þjónustunamskeid
Túlkaþjónusta
Tækninámskeið
Verk-og stjórnendanám
Vinnuvelanamskeid
Þjónanámskeið
Þjónusta í sal
Öryggisnámskeið
Það er mikill stígandi í fjölda umsókna það sem af er ári og ljóst að ekkert lát er á. Mikill vilji er innan fyrirtækja til fjárfesta í sínum mannauði og þar getur Starfsafl svo sannarlega veitt fjárhagslegan stuðning en fyrirtæki geta sótt allt að þrjár milljónir króna í sjóðnn, sbr. reglur þar um. Nánari upplýsingar má finna á vef Starfsafls www.starfsafl.is eða í síma 5107550