Stjórnun á slysavettvangi

Áhugavert námskeið sérstaklega gagnlegt atvinnubílstjórum.

 

Námskeiðið er í umsjón Björgunarskóla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og er ætlað atvinnubílstjórum en opið öllum áhugasömum.

Farið verður yfir atriði sem skipta máli þegar kemur að stjórnun á slysavettvangi:

Hvað þarf að hafa í huga til að tryggja rétt vinnubrögð? 
Hvernig fáum við yfirsýn? 
Hvernig komum við upplýsingum frá okkur til þar til gerðra aðila?

Farið verður bæði yfir minni sem og stærri slys ásamt þeim ferlum sem fara í gang í stærri aðgerðum. 
Þá er einnig farið yfir hvernig skuli standa að því að óska eftir og svo taka á móti þyrlu þegar þess þarf.

Námskeiðið er haldið af Björgunarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar og er
3 klukkustundir að lengd.

Kennt: Miðvikudaginn 11. október frá kl. 18:30-21:30.

Kennsla fer fram hjá Eflingu-stéttarfélagi, Sætúni /Guðrúnartúni 1, 4. hæð.

Skráning hjá Eflingu stéttarfélagi í síma 510 7500 eða á netfangið efling@efling.is

Námskeiðið er félagsmönnum að kostnaðarlausu þar sem Starfsafl styrkir að fullu.

Myndin er fengin að láni og hefur ekkert með námskeiðið að gera heldur hér sett til að vekja athygli