Starfsþróun á tímum samkomutakmarkanna

Það er fátt eðlilegt við það ástand sem verið hefur á vinnumarkaði síðastliðna tíu mánuði. Heilu vinnustaðirnir hafa verið lokaðir svo vikum og mánuðum skiptir vegna samkomutakmarkana og samskipti, bæði vinnutengd og önnur, fara fram með aðstoð stafrænna miðla segir framkvæmdastjóri Starfsafls, Lísbet Einarsdóttir, í pistil á vísir.is sem birtur var í gær.

Þessar aðstæður eru að mörgu leyti alveg nýjar fyrir okkur þrátt fyrir að hafa áður mætt sambærilegum hindrunum eða áföllum á vinnumarkaði með tilheyrandi álagi á rekstur og stjórnun. Það sem er ekki nýtt fyrir okkur er hinsvegar sú tilhneiging margra til að láta fræðslu og frekari fjárfestingu í þróun mannauðs víkja þegar harðnar í ári.

Skiljanlega er eigandi fyrirtækis sem sér fram á þrot og gerir hvað hann getur til að þrauka frá mánuði til mánaðar lítið að hugsa um þessháttar, við skiljum það. En fyrir eigendur fyrirtækja sem sjá fram á bjartari tíma þá er þróun mannauðs eitthvað sem ekki má kasta fyrir róða og mörg fyrirtæki eru vel meðvituð og hafa hvergi slegið slöku við. Það er nefnilega svo að fyrirtæki sem eru með skýra stefnu, markvissa fræðslu og virkar starfsþróunaráætlanir eiga auðveldara með að mæta breytingum, bæði þeim sem eru innan skipulagsheildarinnar sem og breytinga sem koma úr rekstrarumhverfinu. Þá má einnig gera ráð fyrir minni starfsmannaveltu, skipulagðara verklagi og bættri rekstrarafkomu. Ávinningurinn er augljós.

Það er sannarlega erfitt fyrir þá stjórnendur sem bera ábyrgð á stjórnun og starfsþróun mannauðs að skipuleggja það sem telst til fræðslu og starfsþróunar, ekki vitandi hvar, hvort eða hversu margir eru og verða starfandi á komandi vikum og mánuðum. Engu að síður er mikilvægt að skoða þessa þætti, setja ákveðin markmið og útbúa plan A eða plan B eða jafnvel hvorutveggja.

Á undanförnum mánuðum hefur slagorð starfsmenntasjóða verið „Samkomubann þýðir ekki fræðslubann‘‘ og með því hafa sjóðirnir viljað hvetja til fræðslu innan fyrirtækja þrátt fyrir þær augljósu hindranir sem eru og verið hafa á vinnumarkaði. Áhrifin hafa verið jákvæð og fjöldi fyrirtækja nýtt sér sinn rétt.

Það hefur reynt á útsjónarsemi stjórnenda fyrirtækja að bjóða sínu starfsfólki upp á fræðslu á vinnumarkaði þar sem ekki má koma saman en tæknilausninar voru og eru fyrir hendi og leiðin greið. Innan margra fyrirtækja var þegar búið að innleiða stafræna fræðslu og fræðsla af því tagi orðin ríkur þáttur í menningu þeirra. Stjórnendur annarra fyrirtækja hafa þurft að hafa hraðar hendur og einhenda sér inn í framtíð stafrænnar fræðslu. Einhverjir hafa setið eftir.

Hvað sem er og verður þá er mikilvægt að hafa í huga að þróun mannauðs er mikilvæg á öllum tímum og finna þarf leiðir til að hægt sé að fjárfesta í mannauð með fræðslu við hæfi sem tekur sannarlega mið af stefnu og framtíðaráformum allra hlutaðeigandi.
Munum að lausnirnar eru allar fyrir hendi. Tíminn er núna.

Pistilinn má lesa hér á vef Vísis.