Starfsafl styrkir goodtoknow.is
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur þróað nýtt verkfæri fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu og veitti Starfsafl til þess styrk, að upphæð kr. 350.000,-
Um er að ræða upplýsinga- og fræðsluvefinn goodtoknow.is sem hefur það að markmiði að auðvelda framlínustarfsfólki að veita ferðamönnum góðar og gagnlegar upplýsingar. Vefurinn nýtist sérstaklega þeim, sem hafa ekki áður starfað í ferðaþjónustu.
Á vefnum má finna ýmsar upplýsingar um áfangastaðinn Ísland, m.a. um íslensku þjóðina, landfræði, fjölda ferðamanna, áfangastaði ferðamanna og öryggisatriði.
Með því að kynna sér upplýsingarnar á goodtoknow.is getur starfsfólk aflað sér grunnþekkingar um Ísland og íslenska ferðaþjónustu sem gagnast þeim í starfi.
Hugmyndin af vefnum kom frá Ferðamálastofu og var Hæfnisetri ferðaþjónustunnar falið að útfæra verkefnið. Auk Ferðamálastofu komu Áfangastaða- og Markaðsstofur landshlutanna, Safetravel og ASÍ að verkefninu. Vefurinn var einnig lagður fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu sem gáfu endurgjöf á efnið. Landsmennt, Starfsafl og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks styrktu verkefnið.
Fyrsta útgáfa vefsins er núna aðgengileg á ensku en til stendur að vefurinn verði einnig á íslensku.
Góð upplýsingagjöf til ferðamanna er gríðarlega mikilvæg, því áreiðanlegar og gagnlegar upplýsingar ýta undir jákvæða og örugga upplifun ferðamanna sem aftur á móti eykur ánægju þeirra.
Við hvetjum stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu til að kynna sér goodtoknow.is
Myndin er fengin af vef goodtoknow.is