Þau fyrirtæki sem útbúa eigið stafrænt námsefni fyrir stafrænt námsumhverfi geta sótt sérstaklega um styrk til sjóðsins en veittur er allt að 400.000 króna styrkur vegna eigin námsefnisgerðar.
Ef námsefnið er á íslensku og textað þá getur styrkur orðið að hámarki kr. 400.000
Ef námsefnið er á öðru tungumáli þá getur styrkur orðið að hámarki kr. 300.000
Hámarksfjöldi styrkja eru fjórir á almannaksári.
Forsendur og fylgigögn:
• Stafrænt námsumhverfi þarf að vera til staðar hjá fyrirtækinu
• Afrit af námskeiði (myndband).
• Upplýsingar um markhóp námskeiðsins
• Reikningur og staðfesting á greiðslu
• Önnur gögn í samráði við sjóðinn
Til viðbótar gilda skilyrði umsókna og þau gögn sem þurfa að fylgja.