Skrifstofa Starfsafls lokuð 20-29. nóvember
Skrifstofa Starfsafls verður lokuð frá mánudeginum 20. nóvember til miðvikudagsins 29. nóvember.
Umsóknir fyrirtækja er hægt að leggja inn á www.attin.is og verða þær umsóknir sem berast á áðurgreindum tíma afgreiddar eftir 29. nóvember ef öll tilskylin gögn fylgja, sjá nánar hér.
Allar upplýsingar um reglur vegna styrkja er hægt að sjá hér og þá eru góðar upplýsingar á vef áttarinnar, www.attin.is um bæði sjóði og félög, yfirlit yfir helstu styrki og fleira.
Önnur erindi verða einnig afgreidd eftir 29. nóvember.
Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Um Starfsafl:
Starfsafl fræðslusjóður er í eigu Samtaka atvinnulífsins og Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar. Sjóðurinn varð til á grundvelli kjarasamninga árið 2000 og hlutverk hans er að styrkja félagsmenn og fyrirtækin sem þeir starfa hjá, í starfsmenntun.
Stykir til einstaklinga eru afgreiddir af stéttafélögunum en Starfsafl afgreiðir styrki til fyrirtækja. Tekjur Starfsafls eru starfsmenntaiðgjald sem er samningsbundið gjald atvinnurekenda til sjóðsins, eins og um er samið á hverjum tíma.