Skrifstofa Starfsafls lokuð vegna vetrafrís
Skrifstofa Starfsafls er lokuð frá mánudeginum 17. febrúar til föstudagsins 28 febrúar, vegna vetrarfrís.
Umsóknir fyrirtækja er hægt að leggja inn á www.attin.is og verða þær umsóknir sem berast á áðurgreindum tíma afgreiddar í byrjun mars, ef öll tilskylin gögn fylgja.
Allar upplýsingar um reglur vegna styrkja er hægt að sjá hér og þá eru góðar upplýsingar á vef áttarinnar, www.attin.is um bæði sjóði og félög, yfirlit yfir helstu styrki og fleira.
Önnur erindi verða einnig afgreidd eftir 28. febrúar.
Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Um Starfsafl:
Starfsafl fræðslusjóður er sjóður Samtaka atvinnulífsins og Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar. Sjóðurinn varð til á grundvelli kjarasamninga árið 2000 og hlutverk hans er að styrkja félagsmenn og fyrirtækin sem þeir starfa hjá, í starfsmenntun.
Stykir til einstaklinga eru afgreiddir af stéttafélögunum en Starfsafl afgreiðir styrki til fyrirtækja. Tekjur Starfsafls eru starfsmenntaiðgjald sem er samningsbundið gjald atvinnurekenda til sjóðsins, eins og um er samið á hverjum tíma.
Með vetrarkveðju,
Lísbet Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Starfsafls.