Skrifstofa Starfsafls lokuð vegna sumarleyfa
Skrifstofa Starfsafls verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með mánudeginum 16. júní til föstudagsins 3. júlí 2025.
Umsóknir fyrirtækja er hægt að leggja inn á www.attin.is og verða þær umsóknir sem berast eftir 11. júní afgreiddar í júlí. Önnur erindi sem berast á áðurnefndum tíma, bíða einnig afgreiðslu til þess tíma.
Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Um Starfsafl:
Starfsafl fræðslusjóður er starfsmenntasjóður Samtaka atvinnulífsins og Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar. Sjóðurinn varð til á grundvelli kjarasamninga árið 2000 og hlutverk hans er að styrkja félagsmenn og fyrirtækin sem þeir starfa hjá, í starfsmenntun.
Stykir til einstaklinga eru afgreiddir af stéttafélögunum en Starfsafl afgreiðir styrki til fyrirtækja. Tekjur Starfsafls eru starfsmenntaiðgjald sem er samningsbundið gjald atvinnurekenda til sjóðsins, eins og um er samið á hverjum tíma.
Myndin með fréttinni er fengin hér