Skrifstofa Starfsafls lokuð vegna sumarleyfa

Skrifstofa Starfsafls verður lokuð vegna sumarleyfa  frá og með mánudeginum 10. júní til máudagsins 1. júlí 2024.

Umsóknir fyrirtækja er  hægt að leggja inn á www.attin.is og verða þær umsóknir sem berast á áðurnefndum tima  afgreiddar í júlí.  Önnur erindi bíða einnig afgreiðslu til þess tíma.

Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Sólarkveðja.

Um Starfsafl:

Starfsafl fræðslusjóður er starfsmenntasjóður Samtaka atvinnulífsins og Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar. Sjóðurinn varð til á grundvelli kjarasamninga árið 2000 og hlutverk hans er að styrkja félagsmenn og fyrirtækin sem þeir starfa hjá, í starfsmenntun.

Stykir til einstaklinga eru afgreiddir af stéttafélögunum en Starfsafl afgreiðir styrki til fyrirtækja. Tekjur Starfsafls eru starfsmenntaiðgjald sem er samningsbundið gjald atvinnurekenda til sjóðsins, eins og um er samið á hverjum tíma.

Myndin með fréttinni er fengin hér