Skrifstofa Starfsafls lokuð 1.-11 september

Skrifstofa Starfsafls verður lokuð frá föstudeginum 1. september til mánudagsins 11. september vegna síðbúins sumarleyfis. 

Umsóknir fyrirtækja er  hægt að leggja inn á www.attin.is og verða þær umsóknir sem berast á áðurgreindum tíma afgreiddar vikuna 11-15 september, ef öll tilskylin gögn fylgja.  Önnur erindi bíða einnig afgreiðslu til þess tíma.

Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Um Starfsafl:

Starfsafl fræðslusjóður er í eigu Samtaka atvinnulífsins og Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar. Sjóðurinn varð til á grundvelli kjarasamninga árið 2000 og hlutverk hans er að styrkja félagsmenn og fyrirtækin sem þeir starfa hjá, í starfsmenntun.

Stykir til einstaklinga eru afgreiddir af stéttafélögunum en Starfsafl afgreiðir styrki til fyrirtækja. Tekjur Starfsafls eru starfsmenntaiðgjald sem er samningsbundið gjald atvinnurekenda til sjóðsins, eins og um er samið á hverjum tíma.