Skrifstofa Starfsafls lokuð til 23. september
Skrifstofa Starfsafls verður lokuð frá fimmtudeginum 12. september til máudagsins 23. september 2024.
Umsóknir fyrirtækja er hægt að leggja inn á www.attin.is og verða þær umsóknir sem berast á áðurnefndum tima afgreiddar að þeim tíma liðnum. Önnur erindi bíða einnig afgreiðslu til þess tíma.
Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga..
Um Starfsafl:
Starfsafl fræðslusjóður er starfsmenntasjóður Samtaka atvinnulífsins og Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar. Sjóðurinn varð til á grundvelli kjarasamninga árið 2000 og hlutverk hans er að styrkja félagsmenn og fyrirtækin sem þeir starfa hjá, í starfsmenntun.
Stykir til einstaklinga eru afgreiddir af stéttafélögunum en Starfsafl afgreiðir styrki til fyrirtækja. Tekjur Starfsafls eru starfsmenntaiðgjald sem er samningsbundið gjald atvinnurekenda til sjóðsins, eins og um er samið á hverjum tíma.
Myndin með fréttinni er fengin hér