Skráningu lokið á vorfund Starfsafls

Skráningu er lokið á vorfund Starfsafls sem haldinn verður fimmtudaginn 11. maí nk á Vox Club Hilton Reykjavík Nordica.  Skráning fór fram úr björtustu vonum og er allt útlit fyrir vel sóttan og góðan fund.

Fyrirlesararnir eru hverjum öðrum betri, með góða fagþekkingu á sínu sviði en dagsskrá er samanber eftirfarandi auk þess sem gefinn er góður tími til tengslamyndunar.

13:30  Fomaður stjórnar Starfsafls, Jóhann Kristjánsson, býður gesti velkomna

13:40  Tölur og tækifæri – hvað segir mælaborðið? Framkvæmdastjóri Starfsafls, Lísbet Einarsdóttir.

14:00  Nýtum gögn við greiningu fræðsluþarfa: Eva Karen, eigandi og ráðgjafi Effect segir frá Fræðslustjóri að láni verkefni hjá Flatey Pizza og notkun þarfagreiningaverkfæris sem hún hannaði og öllum er velkomið að nota

14:30  Fagmennska í fræðslu: Fanney Þórisdóttir fræðslustjóri Bláa Lónsins, Menntafyrirtæki ársins 2023, veitir innsýn í fræðslumál fyrirtækisins sem sannarlega eru til fyrirmyndar

14:50  Kaffihlé & tengslamyndun

15:20  Húmor virkar í fræðslu: Sveinn Waage sérfræðingur á sviði húmors gefur góð ráð

16:00  Vorfundi slitið

Fundarstjóri: Snorri Jónsson, fulltrúi Samtaka atvinnulífsins í stjórn Starfsafls

 

Vorfundur Starfsafls 2023