Skráning hafin á dyravarðanámskeið
Starfsafl vill vekja athygli á því að hafin er skráning á dyravarðanámskeið hjá Mími Símenntun.
Námskeið fyrir dyraverði er unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Námskeiðið er ætlað starfandi dyravörðum og/eða þeim sem hyggjast starfa við dyravörslu. Þá hentar námskeiðið einnig starfsfólki hótela og veitingahúsa sem t.d. vinna næturvaktir. Námskeiðið er starfstengt og er ætlað að efla þátttakendur í starfi.
Helstu námsgreinar eru:
Ábyrgð og hlutverk dyravarða
Fyrsta hjálp
Fjölmenning
Samskipti – erfiðu atvikin
Réttindi og skyldur
Brunavarnir
Að námskeiði loknu fá þátttakendur dyravarðaskírteini sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gefur út en skírteinið gildir í þrjú ár.
Námskeiðsgjald er 45.000 krónur og hefur Starfsafl styrkt fyrirtæki samkvæmt þeim reglum sem við eiga. Sæki fyrirtæki um styrk vegna starfsmanns þá er endurgreiðsla á reikning 75%. Athugið að viðkomandi starfsmaður þarf að vera starfandi þegar námskeiðið fer fram. Þá geta einstaklingar sótt um styrk sbr. þær reglur sem um það gilda.
Mælt er með því að umsækjendur hafi sótt um staðfestingu á umbeðnum skilyrðum frá lögreglunni áður en þeir skrá sig á námskeiðið.
Myndin er tekin við útskrift í maí síðastliðinum, þegar 32 dyraverðir með réttindi voru útskrifaðir.