Skilgreining náms / námskeiðs
Starfsafl styðst við flokkun fræðsluaðila við skilgreiningu á hvaða nám/námskeið falla undir almennt starfsnám
Skilgreining á hugtakinu námskeið
Afmarkaður hluti náms sem fylgir fyrirfram ákveðinni áætlun eða skilgreiningu og lýkur yfirleitt með vottun á frammistöðu eða annars konar staðfestingu
Hvaða skilyrði þarf námskeið að uppfylla til að kallast námskeið af hálfu Starfsafls:
1. Hafa skilgreint upphaf, endi og leiðbeinanda sem ætla má að sé til þess bær að standa fyrir kennslu
2. Skýr efnistök og markmið
3. Þarf að vera öðrum fyrirtækjum aðgengilegt á sama eða sambærilegu verði
Til athugunar
Námskeiðskostnaður getur aðeins falið í sér þann kostnað sem telst beinn kostnaður við námskeiðið sjálft. Til námskeiðskostnaðar telst ekki kostnaður sem fellur til við sýnatöku, kannanir, þarfagreiningar eða þátta sem falla ekki undir beinan kostnað við námskeiðshald.
Ráðgjöf eða handleiðsla uppfyllir ekki skilyrði námskeiðs af hálfu sjóðsins
Starfsafl áskilur sér rétt til að taka til skoðunar og kalla eftir nánari upplýsingum á efnisinntaki, kostnaði eða hæfi leiðbeinanda. Að sama skapi áskilur Starfsafl sér rétt til að gera athugasemdir eða takmarka styrkveitingu ef verðlagning náms getur ekki talist í samræmi við viðmið markaðarins, ef ætla má að skilgreindur undirbúningstími sé umfram það sem eðlilegt getur talist eða ef vísbendingar eru um að verðlagning ber þróunarkostnað umfram það sem eðlilegt má teljast. Að gefnu tilefni áskilur Starfsafl sér rétt til að hafna umsóknum.