Saga Travel fær Fræðslustjóra að láni

Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við Saga Travel ehf á Akureyri.

Saga Travel er norðlenskt ferðaþjónustufyrirtæki með höfuðstöðvar sínar á Akureyri en jafnframt með starfsstöð í Reykjavík. Fyrirtækið býður upp á fjölbreytt úrval dagsferða og pakkaferða frá Akureyri og Mývatni undir leiðsögn reynslumikilla fararstjóra. Markmið Saga Travel er að veita fjölbreytta og persónulega þjónustu í hæsta gæðaflokki.

Starfsmenn fyrirtækisins eru um tuttugu talsins og verkefnið aðeins að hluta til styrkt af Starfsafli en SVS og Landsmennt koma þar einnig að.

Verkefnið felur í sér að sjóðirnir leggja til “Fræðslustjóra að láni”, fræðslu- og mannauðsráðgjafa, sem greinir fræðsluþarfir fyrirtækisins og semur fræðsluáætlun byggða á greiningunni.

Fræðsluáætlunin skal vera með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Greiningin og fræðsluáætlunin er ávallt unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins. Allur kostnaður vegna ráðgjafans er greiddur af þeim sjóðum sem að verkefninu koma en framlag fyrirtækisins felst í framlögðum tíma starfsfólks.

Ráðgjafi verkefnisins er Símey – Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og verður farin sú leið að gera rafræna skimun fræðsluþarfa.

Nánari upplýsingar um verkefnið Fræðslustjóra að láni má nálgast á vef Starfsafls, www.starfsafl.is eða í síma 5107550

Myndin er fengin að láni af fésbókarsíðu fyrirtækisins.