RÚV fær Fræðslustjóra að láni
Í gær, þriðjudaginn 4 júlí, var undirritaður samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við RÚV, ríkisútvarp. Verkefnið tekur til tæplega þrjúhundurð starfsmanna og SVS leiðir verkefnið. Aðrir sem koma að verkefninu eru Starfsafl, Rafiðnaðarskólinn og Blaðamannafélag Íslands.
Fræðsluáætlunin skal vera með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Greining og fræðsluáætlunin er ávallt unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins. Allur kostnaður vegna ráðgjafans er greiddur af þeim sjóðum sem að verkefninu koma en framlag fyrirtækisins felst í framlögðum tíma starfsfólks.
RÚV er sameign íslensku þjóðarinnar og hefur fylgt henni allt frá árinu 1930. RÚV, sem útvarp í almannaþjónustu, hefur þann tilgang að uppfylla lýðræðislegar, menningarlegar og samfélagslegar þarfir í þjóðfélaginu með miðlun texta, hljóðs og mynda ásamt öryggisþjónustu á sviði útvarps, segir á vef RÚV. Starfsstöðvar RÚV eru í Efstaleiti 1 í Reykjavík og á Akureyri en stefnt er að aukinni starfsemi á landsbyggðinni á næstu misserum.