Á vef Samtaka atvinnulífsins má lesa áhugaverða grein sem vert er að lesa um örnám og hlutverk þess í síbreytilegu starfsumhverfi.
Í greininni er fjallað um örnám sem sveigjanlega leið til að mæta hröðum breytingum á vinnumarkaði og síbreytilegum hæfnikröfum. Með örnámi geta einstaklingar bætt við sig markvissri þekkingu og færni samhliða starfi og þannig brugðist hraðar við þörfum atvinnulífsins.

Bent er á að hefðbundið menntakerfi geti verið of ósveigjanlegt til að mæta þessum hraða og að aukið vægi örnáms sé að koma fram í alþjóðlegri umræðu um símenntun og starfsþróun. Á Norðurlöndum eru til námsleiðir með svipaða eiginleika þó þær séu ekki alltaf formlega skilgreindar sem örnám.
Áhersla er lögð á mikilvægi samstarfs milli menntakerfis og atvinnulífs, skýrra gæða og matsviðmiða, tengingar við formlegt menntakerfi og þróunar tæknilegra lausna til að halda utan um nám og vottanir.
Niðurstaðan er sú að örnám geti orðið mikilvæg viðbót við hefðbundna menntun og lykilþáttur í símenntun framtíðarinnar.
Greinin er eftir Maj-Britt H. Briem, stjórnarkonu í stjórn Starfsafls og lögfræðing á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins og má lesa í heild sinni hér
Myndin er fengin að láni af vef Samtaka atvinnulífsins.